Til að komast í helgarstuð - tékkið á þessu.....
2.3.2012 | 17:40
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það væri mjög hressandi.......
27.2.2012 | 14:25
|
Hoppað út í sundlaug beint úr rúminu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Snilldarskemmtilegt myndband - verðið að skoða......
27.2.2012 | 14:13
Árshátíðarmyndband í vinnunni minni - mjög skemmtilegt - þið verðið að horfa.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Friðsamleg mótmæli barna og unglinga í Húsahverfi vegna niðurtöku á körfu af leiksvæðinu .
12.5.2011 | 13:11
Ég er mjög stolt af börnunum í hverfinu og þeim sem mættu á leiksvæðið s.l. þriðjudagskvöld til að mótmæla.
Einn af efnilegustu körfuboltastrákum Fjölnis skipulagði "Körfubolta-keppni" sem allir tóku þátt í og skemmtu börnin og unglingarnir sér afar vel !
Á þessum velli hafa margir af efnilegustu körfuboltamönnum- og konum hafið feril sinn - og er mikil synd ef Reykjavíkurborg stuðli að frekari inniveru en útiveru meðal barna og unglinga.
Sjálf bý ég í Veghúsum á 4 börn og íbúð mín snýr út að leiksvæðinu. Mín börn hafa notað þetta leiksvæðið mjög mikið - jafnvel átt það til að skottast aðeins út milli heimalærdóms til að fá sér ferskt loft - og hitta nokkrum skotum í körfuna - jafnvel í snjókomu - sem er að sjálfsögðu mun heilbrigðara en að setjast niður fyrir framan tölvuna að "chilla".
Að borgin skuli hafa mætt þegjandi og hljóðalaust um hábjartan dag til að fjarlægja mest notaða leiktækið á svæðinu er með ólíkindum.
Mér skilst að kvartanir hafi borist ítrekað frá íbúa í götunni um að "bolta-dripl" heyrðist að kvöldi til. Í barnahverfi er ekki við öðru að búast !
Meðan ekki eru drykkjuæti í unglingum eða notaðar sprautunálar að finnast á svæðinu - er ég ánægð !
Ég trúi ekki öðru en að borgin sjái sóma sinn í að setja upp nýja körfu fyrir börnin - og ekki síður foreldra í hverfinu hið fyrsta !
Þó svo að karfa sé á öllum skólalóðum í dag - er ekki hægt að ætlast til þess að 10 ára börn og yngri fari á skólalóð í hvert skipti sem þau vilja fara í körfu. Síðustu fréttir af "perrum" að reyna að lokka börn til sín voru í þessari viku !!!
Síðustu ár hefur þetta leiksvæði orðið fyrir fyrir mikilli skerðingu - kastali fjarlægður - stór og fínn sandkassi sem var mikið notaður - hefur breyst í algjört frímerki - og að lokum var karfan fjarlægð - er Reykjavíkurborg að stuðla að frekari inniveru barna og unglinga í hverfinu - eða hvað ????????
Miðað við þau svör sem nágranni minn fékk - er stefna borgarinnar að fækka leiksvæðum - sem er með öllu óskiljanlegt !!!
Það sem mér fannst yndislegt að sjá var hversu þétt og vel börnin og unglingarnir stóðu saman þetta kvöld - skemmtu sér vel í heilbrigðum og skemmtilegum leik - ótrúlega flottir krakkar !!!
Mjög margir fullorðnir gáfu sig á tal við þau - styðja þau heilshugar - og ein nefndi hversu flottir unglingarnir séu í dag - standa þetta þétt og vel saman - þegar eitthvað er gert á þeirra hlut.
|
Mótmæli í Grafarvogi í kvöld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Smá hérna.......
8.9.2010 | 14:28
Letibloggarinn mikli - þó ekki sá allralatasti.
Sindri minn átti afmæli um síðustu helgi - yndislegi strákurinn minn - verður strákaboð heima næsta laugardag - vinir hans búnir að tryggja það - og að það verði heimatilbúnar veitingar....... þeir vilja ekki Dominospizzur..... heldur skemmtilega - öðruvísi heimatilbúnar veitingar!
Ég er búin að vera með einhverja fj..... augnsýkingu - með rauð og sokkin augu - væri hægt að halda að ég væri búin að liggja í drykkju í marga daga - hic....... dæli áburði í augun - og er svei mér þá - aðeins að skána...... ástæða þessa ókunn- gæti þó stafað af augnbaði upp úr spritti...... jebb.... snilldartaktar hjá mér - ákvað s.l. föstudag að setja spritt á hendurnar á mér eftir klósettferð hér í vinnunni - einhver stífla var í pumpunni - og sprautaðist beina leið upp í augun á mér....... þegar ég kom út af klósettinu - hefði verið hægt að halda að þar hefði ég setið hágrenjandi og drekkandi......... - ilmandi af spritt - og afar rauðeygð........
Sumarið hefur liðið allt of fljótt - skil´ett´ekki....... við ferðuðumst um Vestfirði í ágætu veðri - vorum í sumarbústað tengdó í viku - í afslöppun og leti - ættarmót á Galtalæk - þar sem rigndi eldi og brennisteini aðaldaginn - við erum búin að fara í veiði - veiðidella hefur heltekið suma fjölskyldumeðlimi........ ég næ ekki að veiða neitt nema drullu - maður skellir því ekki á grillið - Ingi fékk veiðidellu - en verður að hafa mig með - þar sem hann hefur 10 þumalputta....... - einhver þarf að gera hnútana - og tæla fiskana að landi - ætli ég sé ekki lukkudýrið hans Inga :)
Vinnan alltaf á sínum stað - óléttan virðist vera að ganga hér á svæðinu - en - hún nær ekki í skottið á mér...... guð....... ég myndi ekki nenna því - hef 5 x orðið ólétt - og á í dag 4 yndisleg og heilbrigð börn - það er nóg fyrir mig !
Við systur ætlum bráðlega í skvísuferð út fyrir bæinn - nauðsynlegt aðeins að leyfa sér að smella sér í "húsmæðraorlof" - með kokteilablöndur undir arminum - og danstónlist af bestu gerð - ásamt smá kjaftasögum í pokahorninu! - Nauðsynlegt!
Gott í bili - kveðja frá þessari "ógeðslegamikiðbissífrúLauju"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Söngtextar
23.7.2010 | 14:54
Já - nú get ég sko farið að gleðja mína nánustu - fann síðu sem inniheldur texta við mööööörg lög -
slóðin er....... http://www.lyricstime.com
algjör snilld
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag hefði mamma orðið 75 ára
7.7.2010 | 12:31
Já, í dag er afmælisdagurinn hennar mömmu, hefði hún lifað væri hún að halda upp á 75 ára afmælið sitt í dag.
Undarlegt að hún skuli vera farin úr lífi manns - jú - það er skrítið að vera munaðarlaus - eins og Bidda spurði mig að þegar hún var dýdáin. Þetta venst þó - en oft er manni hugsað til hennar - en eins og heilsan var orðin hjá henni - þá var lífið ekki orðinn neinn dans á rósum.
Þó finnst mér hún alls ekki vera farin - aðeins að ég hafi ekki heimsótt hana lengi - og eigi eftir að kíkja til hennar einn daginn - sem er gott. Ligg ekki í þunglyndi eða gráti yfir að hún skuli vera farin - ekki það að skilja að ég sakni hennar ekki - því það geri ég svo sannarlega - en heilsan var ekki upp á það marga fiska orðin hjá henni að hefði verið gaman að lifa þannig í nokkur ár í viðbót. Þannig er nú það.
Ætli þau pabbi séu ekki að fá sér kjötsúpu eða eitthvað annað góðgæti í nýju heimkynnum sínum - e.t.v. farin í heimsreisu - hver veit ! ........allavega trúir maður því að þeim líð vel á nýjum stað - og séu að gera skemmtilega hluti saman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16. júní
16.6.2010 | 09:04
Í dag er 88 ára afmælisdagurinn hans pabba- einnig eru 3 ár í dag síðan hann dó - skelfing líður tíminn hratt.
Þó pabbi og mamma séu bæði dáin - finnst mér það ennþá eitthvað svo óraunverulegt - finnst aðeins eins og ég hafi ekki heimsótt þau lengi. Að sjálfsögðu saknar maður þess að heyra ekki eða sjá þau - og einnig að hafa ekki munað hinar ýmsu sögur sem þau sögðu - og að spyrja þau út í eitt og annað í þeirra lífi.
T.d. hef ég aðeins verið að glugga í ýmsar minningar sem pabbi skrifaði - og myndi ég svo gjarnan vilja fá að vita nánar um eitt og annað. En hann var svo sem ekkert að upplýsa mann um líf sitt á árunum frá því hann var strákur - þar til hann og mamma tóku saman - og virðist mér það hafa verið ansi erfitt og stormasamt á köflum. (Því miður skrifaði mamma ekki niður neinar endurminningar - sem hefði verið svo gaman að fá að lesa).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumarfrí....... vííí.......
15.6.2010 | 12:53
Það er alveg að detta inn. Ætlum að skella okkur á Vestfirði - ég fékk hús á Súðavík í gegnum VR og verðum við þar í viku - 170 fm hús - þannig að það ætti að vera rúmt um okkur. Ég var að kíkja á veðurspána - sem er í augnablikinu ekkert agalega spennandi - skýjað og rigning
- en við látum það ekki hafa áhrif á okkur.
Skoðum okkur um á svæðinu - ýmislegt spennandi sem er hægt að sjá og skoða - best að fara að athuga veiðigræjurnar ef maður myndi ákveða að veiða eitthvað í soðið. Fékk leiðbeiningar í fyrra frá vinnufélaga - hvert væri gaman að kíkja í veiði - AAAAAAAlveg ókeypis ! Held að maður verði að slá til.
Ég er búin að finna oggu-pínulitla sundlaug í Mjóafirði sem stendur eiginlega ofan í fjörunni - börnunum líst misvel á þessa laug - lítill kofi - þar sem hægt er að skipta um föt - allir í einu. Eins og segir í lýsingu á þessum stað "þá situr maður í snarpheitri laug - og horfist í augu við selina í sjónum" - hljómar ekki leiðinlega.
Mig langar til að kíkja á Djúpuvík - ég man eftir að hafa séð myndina "Blóðrautt sólarlag" sem stelpa - myndin tekin upp þar - og í minningunni er þetta frekar óhugnanlegur staður - væri gaman að sjá með eigin augum. Við verðum að kíkja á Ísafjörð sem er í 20 km. fjarlægð - fara í ríkið þar ***glugg***glugg**** - nei ég held ekki - nema ef mann skyldi langa í einn öllara með heimabakaðri pizzu - yfir HM leikjum - sem verður litið á með öðru auganu.
Málið er að njóta þess að vera í fríi með börnunum - skoða eitthvað spennandi - liggja yfir spilum - í boltaleikjum - badminton - og vonandi að sitja með kaffibolla í smá sólbaði - þetta veður ljúft.
Um síðustu helgi var stelpudjamm í vinnunni - í fyrirtækinu starfa 170 manns - þar af erum við stelpurnar aðeins 12....... var mjög skemmtilegt - kokteilar - matur - hvítvín - bjór - tónlist - drykkjuleikur en þar kom ýmislegt fram.... hverjar hafa farið í 3-some - sofið hjá stelpu - gert það í bíó - o.fl. ........ég var sú eina sem hefur "gert það á smurstöð" - híhí! Mjög skemmtilegt kvöld - og vorum við allar sammála um að við þyrftum að endurtaka þetta aftur - þó ekki alveg strax.
Bloggar | Breytt 8.9.2010 kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Morgundagurinn......
28.5.2010 | 14:59
Jamm....... verða ekki "Júró"- partý út um allt ásamt kosningapartýum - það verður forvitninlegt að sjá hvaða fylgi "Georg Bjarnfreðarson" fær....... kæmi mér ekki á óvart þó hann fái talsvert fylgi - verður forvitnilegt að fylgjast með því.
Ég er svo sem enginn sérstakur aðdáandi íslenska lagsins - en hún syngur mjög vel - og auðvitað er skemmtilegra að vera með á aðalkvöldinu - ætli hún endi ekki á topp 5....... ....yfir í annað - skil ekki hvað Hollendingar voru að hugsa - mér fannst lagið HRÆÐILEGA leiðinlegt - enda er ég víst ekkert "Geirmundar-sveiflu-fan" ....á svo sem ekkert algjört uppáhalds lag - en þau lög sem heilla mig helst af þeim sem taka þátt eru frá Frakklandi, Þýskalandi, Danmörku og Rúmeníu - tyrkneska lagið er einnig fínt.
Við systur og familíur ætlum að hittast - grilla saman - og horfa á keppnina - nema e.t.v. mágur minn sem er í framboði - spurning hvort hann verði með okkur - eða annars staðar.......
Tanja og Sindri eru á fullu í prófum þessa daga - frekar pirruð yfir að þurfa að hanga inni í sólinni - þegar margir skólar eru búnir í prófum - og þeir krakkar njóta lífsins. En þau eru afskaplega dugleg þessar elskur - liggja yfir bókunum - og meira að segja voru bekkjarfélagar Tönju að hringja í hana fyrir stærðfræðiprófið - og biðja hana að útskýra eitt og annað fyrir sér ! ....hún er búin að bæta sig afar mikið þetta árið í sambandi við lærdóm - sem er frábært. Tanja er á fullu í ökutímum þessa dagana - og finnst það algjört æði - ökukennarinn hælir henni út og inn - og kemur hún úr hverjum ökutíma svífandi á bleiku skýi.
Alltaf nóg að gera í vinnunni - sem er gott mál - alltaf einhverjar breytingar í gangi - og talsverð vinna alltaf hjá okkur skvísum í sambandi við það. Mér finnst æðislegt að vera aftur komin í Borgartúnið - ef eitthvað þarf að útrétta - þá er nálægð við allt hér á þessum stað.
Síðan er spurning hvað gerist ef Ísland lendir í fyrsta sæti....... verða allir í gleðivímu - eða í sjokki yfir að þurfa að halda keppnina að ári............ jæja - skítt með allt - skál !
.......skálum einnig fyrir "allskonar fyrir aumingja"........ - hmmmmmmm....... skemmtilegt kosningaloforð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


emilhannes
lost
krutti
kiddirokk
lindaasdisar
matarbitinn
bestust
matta
ragnarfreyr
ruthasdisar
telasi
thelmaasdisar
brahim
gattin
ellahelga
matar





