Pabbi minn

Já, hann pabbi er ennþá inni á LSH og verður þar í einhverjar vikur í viðbót - hann er allavega ekki á leiðinni heim.  Hann er búinn að fá annað hjartaáfall, blóðtappa upp í heila, vatn í lungun og þvagfærasýkingu, en hún útskýrir "ruglið" sem er í honum.  Hann hefur t.d. orðið að vera í öndunarvél til að hjálpa honum að anda, af því að öndunin hjá honum var svo stutt niður í lungun.

Sumt af því sem hann segir er óttaleg vitleysa, en annað er alveg í lagi.  En það er ósköp erfitt að horfa upp á hann svona lasinn.  Það á bara alls ekki við hann.  Hann hefur alltaf þurft að vera að sýsla við eitt og annað, hann er búinn að vera þarna í 3 vikur, honum líður mjög vel þarna upp frá, en drepleiðist, að liggja allan daginn, geta ekkert lesið þar sem nýbúið að að skipta um báða augasteina í honum og hann er ekki komin með ný lesgleraugu.  Hjúkrunarkonan segir að hann sé einstaklega ljúft gamalmenni - ekkert vesen á honum og skapgóður - heyr heyr - "like father - like daughter" !! 

Við Hrabba kíktum til hans í gær og var hann ósköp slappur, og hefur elst um mörg ár þessar 3 vikur.  Hann var t.d.  mun hressari s.l. mánudag.  En hann er að verða 85 ára og búinn að lifa góðu lífi - þannig að maður veit aldrei hvenær kallið kemur.  Líka þegar hann er mikill þrjóskupúki og vill alls ekki fara til lækna fyrr en ekkert annað er hægt.  Ef hann hefði fengist til að fara í eftirlit til hjartalæknis, eins og mamma er búinn að vera að reyna að ýta honum út í - þá væri hann e.t.v. bara heima núna í sínu "dútli". 

Fólk á ekki alltaf að vera að þrjóskast við að fara til læknis, þeir eru þarna til að líta eftir okkur.  Og að sjálfsögðu á maður að vera duglegur og fara reglulega í eftirlit.  - Ég tek þetta líka til mín - þarf að fara að endurskoða þetta. 

Manni finnst líka sorglegt að mamma treystir sér ekki til að heimsækja hann.  Hún er það illa á sig komin líkamlega að hún treystir sér ekki að fara í bíl til hans, og finnst mér það sorglegt.

En Hrabba er að fara til hans á eftir til að hjálpa honum að kjósa.  Verst að hann kýs alltaf rangt - en Hrabba láttu hann bara kjósa rétt - hann sér hvort sem ekkert við hvað hann merkir !  Smá grín!

Egill bróðir pabba kíkti til hans í gær og fannst honum "ruglið" vera talsvert í honum.  Unnþór og Gunnar hálfbræður kíktu til hans í fyrradag þannig að það er gott að fleiri en við systur kíkjum til hans.  Eggert bróðir hans  hefur líka verið að kíkja til hans, og veit ég að pabbi hefur mjög gaman af að fá þá til sín - til að rifja upp gamla tíma og strákapör.

Mamma heyrði í Valborgu tvíburasystur pabba í gær, hún er orðin ansi ræfilsleg, alveg blind og bakið er að drepa hana.  Hún er á heimili uppi á Kjalarnesi - ósköp ein og yfirgefin, barnabarnið hennar sem hún ól upp sem sína eigin dóttur - býr í USA - og eru samskipti ósköp lítil, Aðalheiður mamma hennar dó fyrir einhverjum árum, þannig að sá eini sem heimsækir hana er sonur hennar og hans fjölskylda.

Pabbi var að segja í gærkvöldi að hann gæti alveg hugsað sér að fara út í náttúruna og fara á fyllerí með Unnþóri - hann á þó sína dagdrauma - sem er allavega gott.

En mamma er ein í húsinu, sem er alveg agalegt.  Hún fær svima- og yfirliðsköst, hefur mjög litla matarlyst - en Parkinsons hefur víst áhrif á matarlystina - eða töflurnar sem hún er að taka.  Ef hún hefði verið nógu frek - ýtin og erfið og leiðinleg að komast að í mjaðmaaðgerð þá væri hún e.t.v. aðeins betri í dag en hún er. Jafnvel ef hún hefði verið útivinnandi þá hefði hún komist fyrr að - þvílíkt rugl !!!  En hjúrunarfólk hafði aldrei á ævinni sé jafn illa farna mjöðm og mamma er með.

En ég vil líka segja að heimilislæknirinn þeirra í Kópavogi er mesti andsk... aulalæknir sem til er - ekkert bein til hans nefi - hún hefði jafnvel komið betur út úr þessu öllu ef hún hefði haft almennilegan lækni.   -  Svo kjósa þau alltaf sama rassgatið yfir sig aftur og aftur !

Það er eldri kona að vinna með mér og hún komst í forgang í mjaðmaaðgerð af því hún var útivinnandi.  Eða var hún e.t.v. með almennilegan heimilislækni sem drullast til að hjálpa sínum sjúklingum og ýta á eftir að fá aðstoð fyrir þá !  - Í þessu tilfelli sat allavega sama ríkisstjórn!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband