Það sem Erlu dettur í hug að segja.......

Hún er stundum svo fyndin þessi elska.......

Tanja fór með hana út á leikvöll í fyrrakvöld.  Þar er tæki sem krakkar setjast í - stýri í miðjunni - þannig að þau geta farið hring eftir hring á ógnarhraða.  Tanja setti hana upp á þetta - og sneri henni (hún er sko spennufíkill - þá er ég að tala um leiktæki)....... Tanja hætti síðan að snúa - og á endanum valt hún útúr ringluð af tækinu - augun í henni hringsnérust - og hún sagði við systur sína:

"Hvað gerðir þú eiginlega við mig.... hentir þú mér í plastpoka út í geim??"  ...Tanja grenjaði úr hlátri meðan hún sagði þetta - með augun ranghvolfandi í höfðinu......

Annars þá gengur lífið sitt vanagang - er að koma helgi.... íha Smile    eitthvað skemmtilegt verður á döfinni...... og ætla ég að elda einhverja tilraun oní liðið á morgun....... ekki búin að ákveða hvað það verður Grin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Haha hún er yndisleg þessi frænka mín  Þau eru svo einlæg þessar elskur. Vildi kvitta fyrir mig kveðja Telma.

p.s ég kíki á þessa síðu líka sem þú vitnar kveðja

Telma (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 16:41

2 Smámynd: Lauja

Já, það er oft svo gaman að hlusta á hana, skemmtilegar pælingar hjá þessum elskum.

Lauja, 19.8.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband