Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Dansfíflið ég.......

Erlu dóttur minni finnst mér ég vera afar lélegur dansari, svo ég tali nú ekki um danstaktana hjá pabba hennar.  Ég fór upp á stöð um daginn að skúra og Erla kom með, Ingi tók upp á því að dansa fyrir vinnufélagana - og viðbrögð Erlu við þessu framferði pabba hennar var ótrúlegt - hún fór að hágráta.......Errm   hún er afar viðkvæm fyrir að við foreldrar hennar gerum okkur að fíflum.

Ég fór með hana í Bónus í dag - og eins og fólk e.t.v. þekkir þá er ýmislegt sem freistar 5 ára barna í þessum búðum - og geri ég það helst ekki að taka hana með, en stundum er það þó óhjákvæmilegt.  Ég tók nú fram við hana áður en við fórum í búðina, að ef hún bæði mig um að kaupa eitthvað - þá myndi ég standa í miðri búðinni - öskra og dansa..........  Andri var með okkur - og var þögn smástund í bílnum, að lokum spyr Andri systur sína;  "Ætlar þú að biðja mömmu að kaupa eitthvað??"  Svar hennar var afar einfalt;  "Nei".

Hún ætlaði svo sannarlega ekki að eiga á hættu að sjá mömmu sína "dansa" - og láta aðra sjá til hennar í búðinni........   Hún er bara fyndin....... en ég þarf að fara að láta athuga í henni sjónina, við hjónin dönsum hreint ekki svo skelfilega....... Joyful

Svo ég fari nú út í allt annað, þá fór ég í jarðarför í dag.  Verið var að jarða son tvíburasystur pabba.  Hún átti 2 börn - og eru bæði börn hennar látin. 

Það á ekki að leggja á foreldra að þurfa að kveðja börnin sín, einnig ól hún upp dótturdóttur sína sem sitt eigið barn, og býr sú í USA og hefur búið þar í yfir 20 ár, gift og ráðsett útivinnandi húsmóðir þar, og kemur ekki til með að flytja til Íslands aftur. 

Ég held að það hafi verið Valborgu afar erfitt að missa hana í raun og veru - á þennan hátt, þó hún heyri oft í henni - þá er það engan veginn það sama og að fá viðkomandi í reglulegar heimsóknir.   Ég spjallaði við Valborgu í dag - og fannst mér í raun ótrúlegt hvað hún vissi um mig og mína, þó hún sé orðin hálf heyrnarlaus og blind, þá aftrar það henni ekki að fylgjast með.  

Annars þá vorum við frænkur að nefna að við verðum að fara að hittast - öðruvísi en í jarðarförum.  Reyndar hittumst við síðast á "ættarmóti" í ágúst s.l. sem var mjög gaman, en okkur langar til að hittast oftar - nú er bara að gefa sjálfri sér - og systrum sínum spark í rassinn - og sparka í frænkurnar í kring og finna kvöldstund til að hittast og spjalla.

Áðan þegar ég var uppi á stöð að skúra, þá var lag með Madness spilað í útvarpinu - og minnir sú hljómsveit mig alltaf á vissan stað sem ég bjó á þegar ég var unglingur - e.t.v. blogga ég um það síðar.


Áfengi og tóbak......

....... er eitthvað vit í þessu?  Maður brosir allaveg yfir lestrinum.  Næst þegar ég fær mér í glas, þá vitna ég í þessa sögu Tounge...... sérstaklega ef ég fæ mér aðeins of mikið....... Joyful

Ég veit að þið hafið öll heyrt eða lesið um þessi fræði áður, en ég hef ekki séð neinn útskýra þetta eins vel og hinn alvísa Cliff Calvin í Staupasteini.

Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum Norm og það gekk svona fyrir sig:

"Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona....  Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni.  Þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst.

Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni því að með reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar.  

Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og hægustu heilasellurnar leyfa.   Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst. Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari sellurnar drepast og þar með því, að heilinn verður hraðvirkari og skilvirkari.  

Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!"  

Tengd þessari sögu er önnur:

Eins og allir vita þá var meðalaldur íslendinga mjög lengi um það bil 35 ár eða eiginlega frá 950 til 1900.

Á sama tíma var innflutningur á tóbaki mjög lítill eða nokkrir tugir kílóa á ári og þeir sem höfðu hærri meðalaldur voru hástéttarmenn sem reyktu allt það sem var flutt inn til landsins.

Sé litið til þróunnar á innflutning tóbaks þá byrjar hann að vaxa upp úr aldamótunum 1900, og það er mjög nákvæm fylgni milli kúrfunnar á aukningu innflutnings tóbaks og hækkun meðalaldurs Íslendinga.

Báðar kúrfurnar nákvæmlega jafnbrattar og meðaldur hækkað úr 35 árum í um 75 ár.   Það er svo upp úr 1980 sem vöxtur á innflutningi tóbaks minnkar og kúrfan verður flatari og viti menn hækkun meðalaldurs hætti einnig að vaxa jafnhratt og hefur síðan þá einungis hækkað úr 75 árum í 78 ár.  

Semsagt ef drukkið er rösklega og reykt með þá drepur þú samkvæmt lögmálum Darvins (Survival of the fittest) slöppustu sellurnar, maður finnur það greinilega að morgni dags á eftir þar sem góðu sellurnar fá nánast víðáttubrjálæði og þeysast um í kollinum að við lausn óleystra vandamála.


Ísland áfram......

... að sjálfsögðu er aðeins meiri stemming að fylgjast með á laugardag, lagið er ágætt, en mér stóð svo sem nokkuð á sama hvort lagið kæmist áfram eður ei...... hef  sjaldan verið jafn óspennt yfir þessari keppni og nú, þannig að það komu engin fagnaðaróp frá mér þegar Ísland var lesið upp áðan FootinMouth

Ég mun kjósa franska lagið á laugardag.... finnst það ÆÐI Smile......... ef þið eruð búin að gleyma hvernig það hljómar þá skuluð þið kíkja á bloggsíðuna hans Emils og hlusta á það hjá honum....... hann er einnig með franska lagið frá í fyrra, sem er mjög skemmtilegt.

 

 


17. maí 1985........

....... akkúrat þann dag þá byrjuðum við Ingi saman, djö.... hvað maður er orðinn gamall Joyful - þó það sé nú ekki að sjá á manni...... tíhí....

Þannig að við héldum nú aðeins upp á daginn. 

Ingi fór og keypti nautakjöt í Melabúðinni - bestu kjötbúð bæjarins.  Ótrúlega gott kjöt sem við fengum - bráðnaði hreint út sagt upp í manni.  Ég eldaði humar í forrétt, sem heppnaðist afar vel - stór og góður og alveg nýr.   Maturinn heppnaðist sem sagt einstaklega  vel, börnin tóku að sjálfsögðu þátt í þessu með okkur, Erlu fannst nú lyktin af forréttinum ekkert spennandi - og vildi frekar "skyndinúðlur" - hún kann ekki alltaf gott að meta - eins og þið sjáið.  Ég útbjó í eftirrétt "tiramisú" - sem er alltaf gott.

Reyndar vorum við Ingi búin að þekkjast í 6 mánuði áður en eitthvað meira varð á milli okkar, við kynntumst í gegnum Biddu vinkonu.  Þetta kvöld fyrir 23 árum fór ég á gamla góða "Hellinn" - en þangað gat maður alltaf farið og stólað á að hitta einhvern sem maður þekkti.    Og viti menn - Ingi var þarna með vinum sínum þetta kvöld - og settist ég hreint út sagt ofan á hann.  Hefur hann ekki losnað við mig síðan... klukkan 3 - þegar allir staðir lokuðu - stungum við af út í nóttina...... hann skilaði mér heim - eins og sannur herramaður - og áttum við stefnumót daginn eftir.

Kvöldið sem við hittumst í fyrsta skipti - vorkenndi hann mér, hélt ég væri fötluð - sama kvöld missteig ég mig svo illilega og haltraði allt kvöldið - ég var að vinna á einhverjum fundi - en þá var kennaraverkfall í gangi - og Bidda hafði smalað vinum sínum á fundinn - þar á meðal var Ingi og vinir hans.  Við áttum nú eftir að hittast nokkrum sinnum eftir þetta - detta í það saman - hittast hjá Biddu og borða heimabakaða pizzu - og hittast í kaffi hjá henni.  Þannig að við vorum farin að þekkjast ágætlega áður en eitthvað meira varð á milli okkar.


Mig langar í mús....

.... var Erla að tilkynna mér rétt í þessu - afþví að þær eru svo krúttlegar - gerðu það mamma...... þá ertu best Smile  - ég gaf ekki samþykki mitt fyrir því.  Við eigum lítinn og sætan páfagauk - og held ég að það dugi í bili. 

 Síðan spyr Tanja mig - mamma, um hvaða kynsjúkdóm er auðveldast að læra???  -Hei nú varð ég orðlaus!!!  Varð eitt stórt spurningamerki í framan - yppti öxlum og sagðist bara ekki hafa grænan grun. 

Jamm, spurningar - geta verið af ýmsum toga sem dynja á manni........ 

Erla var að pæla í lífinu í síðustu viku, saknaði afa síns sem dó í fyrrasumar, vildi fá hann aftur.  Ég sagði henni að nú væri hann engill - búinn að hitta mömmu sína og pabba - en hvernig fæddust þau spyr hún þá........ þau áttu mömmu og pabba....... já en hvernig fæddust þá þau???? þau áttu líka mömmu og pabba sagði ég - og svona gekk þetta á milli okkar - þar til hún sagði;  Já en þau sem fæddust síðast - hvernig fæddust þá þau???  Fæddust þau bara upp úr grasinu???? - Þau leiða hugann að ýmsum hlutum þessar elskur - bara gaman að því.

Annars þá fannst mér ekkert gaman - þegar hún tók utan um haldlegginn minn og sagði;  Mamma, voða ert þú með lina vöðva....... Grin

Ef þið lesið bloggið hans Emils - þá er ég sammála honum með franska lagið - ótrúlega skemmtilegt lag þar á ferð.

 

 


Saga dagsins

Með mér vinnur ung gullfalleg og afar skemmtileg stúlka.  Hún er í HÍ - og var um daginn að gera ritgerð - vantaði aðeins penna orð yfir hið annars ágæta orð að "ríða" .

Ég stakk upp á að hún gæti notað orðið "samfarir" sem er kannski aðeins penna - sem henni fannst það alveg brilljant, punktaði það á gulan "post it" miða sem hún stakk á góðan stað.

Ég býst nú við að hún hafi farið heim og klárað ritgerðina góðu (sem væri fróðlegt að lesa).

Hún var skiptinemi í fyrra - og var að vinna að gerð ritgerðar í sambandi við dvöl hennar þar - og upplifun hennar á fólkinu þar - og samskiptum kynjanna.

Jæja, ekki meira um ritgerðasmíði hennar.

En um helgina fór hún á djammið með vinkonum sínum, vatt sér upp að barborðinu - pantaði sér ægilega fínan kokteil í sínum fína svarta kjól með sitt ljósa hár, náði í debet kortið og rétti barþjóninum - eeeeeen áfast við debet kortið var þessi líka fíni post it miði -   "SAMFARIR"   var það eina sem aumingja barþjónninn sá - hann leit að sjálfsögðu undrandi á hana og hálf gapandi - hún brosti sínu blíðasta - þar til hún sá miðann sem var fastur við kortið........ hún varð að halda haus....... úbbs.... sagði hún og tók miðann af kortinu - kvittaði fyrir greiðslunni - og var fljót að láta sig hverfa.......


Ný - ný - ný - ný -

já það eru komin ný lög í spilarann hér til hliðar...... héðan og þaðan - - falla kannski ekki í kramið hjá öllum - en ég hef gaman af þeim Smile  -  að sjálfsögðu er eitt lag með "Aðalstjörnu bæjarins" honum Palla og síðan laumaði ég einni "Radíusflugu" með - pínu dónó.......

Grumpa, ég þarf að fá heimilisfangið þitt - til að koma smá sendingu til þín.  Þú getur sent á lauja111266@hotmail.com heimilisfangið þitt  Joyful

 Annars þá horfðí ég á hlustendaverðlaun FM á laugardag - og var búin að gleyma hversu skemmtileg þessi hljómsveit er......

http://youtube.com/watch?v=l6mD2lXV2so&feature=related

http://youtube.com/watch?v=H-Pwk0u4aEo&feature=related

 


Sindri vinnumaður

Já, hann er að fara í vinnu í fyrramálið í Húsdýragarðinn að moka skít, gefa dýrunum o.fl. í þeim dúr.  Hann er svo sem ekkert hoppandi af gleði yfir þessu - en finnst þetta þó allt í lagi.  Bekkurinn fer og verður í vinnu í 4 klukkutíma - þau hafa gott af þessu.

Ég fór áðan af stað til að kaupa á hann stígvél - ekki hægt að senda hann í þessa vinnu í strigaskóm - en að finna stígvél á svona gaur er ekki það auðveldasta í heimi.  Í Hagkaup voru Latabæjarstígvél  - hann hefði drepið mig með augnaráðinu ef ég hefði splæst í þannig útbúnað fyrir hann..... bekkurinn hefði litið hann hornauga - hann var búinn að fá nóg af búðarflakki með mér áðan - þannig að ég ákvað að halda áfram - en skilaði honum og Erlu heim til Tönju.

Endaði ég síðan á að finna stígvél fyrir hann í Smáralind - plain svört - þegar ég kom hins vegar heim - sagði ég honum að ekkert hefði fengist í hans stærð nema "Bósa ljósár" stígvél - djö... að hafa ekki verið með myndavélina uppi við - svipurinn sem kom á hann - átti hann 11 ára töffari að mæta í "Bósa" stígvélum!!!!!!  En þegar hann sá að ég var aðeins að grínast í honum varð léttara yfir andliti hans......

Nóg af þessu helgin var fín - grillið var vel nýtt þessa helgi, indverskt ilmaði í hverfinu á laugardag - kannski að ég fari þó að setja pásu á það - til að familían fái ekki nóg af því - það væri afleitt. 

Í gær bakaði ég pönnukökur - og kíkti ég til mömmu með nýbakað pönnsur - en þá átti hún ekki til sykur....... þannig að börnin skutust út í næsta hús og sníktu sykur hjá húsfrúnni þar á bæ - fyllti hún sykurkarið fyrir þau - enda er hún "Bestust" Wink.  Andri var að sjálfsögðu að læra þessa helgi - þó með hléum - og í gærkvöldi fór Ingi með hann og Tönju á fótboltaleik - og vann Valur að sjálfsögðu..... Grin  Á meðan var ég heima í leti með Sindra og Erlu - lét þau fara í bað - þau fóru saman - með 2 lítra flösku fulla af ísköldu vatni - þannig að þið getið ímyndað ykkur hvers lags skrækir komu af til frá baðherberginu - en mikið skemmtu þér við það Kissing - algjörir vitleysingar......  Þegar baðið var búið - tók Erla til við að rífa í tætlur 250 bita púsl - eingöngu til að púsla það upp á nýtt.......

Held að þetta sé orðið gott í bili - ætla þó að enda þessu færlsu á að óska  tengdapabba til hamingju með afmælið í gær Smile

 


Umhugsunarvert....

Vissir þú.....

.... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?

.... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?

.... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?

....að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?

.... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?

.... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?

.... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?

.... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna

.... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?

.... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?


Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.

-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.

-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.

-Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar.

Við erum allar æði...........og ekki gleyma því!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband