Verslunarmannahelgin.......

..... verður eytt í rólegheitum í bænum að þessu sinni. 

Finnst oft ágætt að vera í bænum þessa helgi.  Enda er Ingi að ná sér eftir lungnabólgu sem hann fékk í sumarfríinu, þannig að ekki er vit í því að vera á miklum þvælingi.  Ingi var þó alveg að verða vitlaus að hanga heima - þannig að hann dreif sig í vinnuna í dag.  Hann er nú svo mikill hrakfallabálkur stundum þessi elska - og í fyrradag rak hann fótinn svo illilega í sófan - þannig að hann er með eina tá bláa og bólgna - og nöglin hálf laus á honum...... þetta gerist víst !  Erlu finnst táin á pabba sínum all-ógeðsleg  Errm - og vildi helst ekki horfa á hana.

Hver veit nema ég kíki eitthvað út úr bænum með börnin í fjöru eða eitthvað annað - fer eftir veðrinu.  Við vorum jafnvel búin að spá í að kíkja vestur í heimsókn til hálfsystra minna - en það verður ekkert af því þessa helgina.

Er hálf andlaus - og blogga ekki meir í þetta skiptið W00t

Farið varlega um helgina - ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera.... Kissing

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband