Komin til Parísar !

Ferðin gekk afskaplega vel, vélin fór á réttum tíma, og vorum meira að segja örlítið á undan áætlun.  Á leið úr vélinni og í flugstöðina var "strætó" og Erla sat við hliðina á "Ágústu Evu Erlendsdóttur" sem er betur þekkt sem Silvía Nótt - en Erla fattaði það ekki - skrítið! 

Engan tíma tók að ná í töskur - Ingi birtist bara allt í einu með þær allar í einu - þannig að þetta gekk allt eins og í lygasögu.

Við byrjuðum á að sækja lyklana, keyrðum framhjá Eiffel turninum sem krökkunum fannst æði - keyrðum alveg upp við hann og fannst þeim skrítið hvað hann væri ótrúlega stór!

Íbúðin er mjög skemmtileg, á 2 hæðum með öllu sem þarf, uppþvottavél, þvottvél, hárþurrku, sjónvarp, DVD, CD spilara og nettengingu - surprise !  (hvernig gæti ég annars verið að blogga).

Við tókum nesti með okkur, flatköku, hangikjöt, kókómjólk, kaffi og mjólk sem kom sér vel í gærkvöldi og í morgun. 

Eigandi íbúðarinnar kom til okkar kl. 10:00 (8:00 að íslenskum tíma) til að fara yfir hvernig hitt og þetta virkaði. 

Til að fara inn í íbúðina þurfum við að fara úr húsinu og inn í lítinn garð sem er umkringdur húsum, falleg blóm og jarðarberjaplöntur eru í þessum garði og risastórt tré.  Beint á móti okkur er íbúð með stórum gluggum og héldum við að þetta væri vinnustofa listmálara - en á íbúðinni eru mjög stórir gluggar  - gardínulausir þannig að við sáum beint inn - við lágum sem sagt ekki á gluggunum að reyna að finna út hvernig fólk væri þarna!

En þegar eigandinn  kom áðan spurðumst við fyrir um nágrannana, sem að hennar sögn er mjög fínir - meðal annars er brjálaður vísindamaður í íbúðinni beint á móti okkur (ekki franskur listmálari) - hann vinnur á hvaða tíma sólahrings sem er - og hann heldur að hann sé að vinna fyrir NASA, klikkaður gaur en besta skinn.  (Ef maður vaknar á nóttunni þá ætti maður að kíkja út um gluggann til að athuga hvort hann sé að vinna).

Við ætum að fara að hafa okkur til - kíkja út á mannlífið.

Úti er rigning en hlýtt, þurfum sennilega að kaupa reglhlíf.

En ég blogga e.t.v. meira á eftir - allir biðja að heilsa öllum sem þetta lesa.

Við ætlum síðan að reyna að setja inn myndir á síðuna hennar Erlu - þetta er slóðin á síðuna hennar:   http://barnaland.is/barn/14564

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthildur B. Stefánsdóttir

Velkomin til "La belle Paris".  Ég prenta þetta og les fyrir mömmu í símann og fyrir pabba á spítalanum en ég fer einmitt til hans í dag.

Matthildur B. Stefánsdóttir, 4.6.2007 kl. 10:14

2 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Góða skemmtun þetta er flott borg

Kristberg Snjólfsson, 4.6.2007 kl. 13:10

3 Smámynd: Margrét M

rosalega góða skemmtun ...

Margrét M, 4.6.2007 kl. 13:17

4 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Gott að ferðin hafi gengið svona vel Verður gaman að fylgjast með ferðasögunni

Kristján Kristjánsson, 4.6.2007 kl. 15:16

5 Smámynd: Matthildur B. Stefánsdóttir

Ég fór til pabba í dag.  Hann hafði gaman af ferðasögunni (og mamma reyndar líka í morgun).  Hann ruglaði bara tvisvar á heilum klukkutíma og þá stutta stund í senn.  Hann átti að fá nudd í kvöld þannig að hann hafði eitthvað að hlakka til.

Ég hlakka til að fá meiri ferðasögu.

Matthildur B. Stefánsdóttir, 4.6.2007 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband