Gay Pride

Af sjálfsögðu mætir maður á þessa hátíð.  Ótrúlega skemmtilegt að kíkja í bæinn á laugrdag.  Veðrið alveg ótrúlegt - að sitja í sólinni á Arnarhóli, njóta veðurblíðunnar og horfa á skemmtilega skrautlegt lið í kringum sig.

Einn var með hvítt pungbindi, svörtum leðurskálmum og vindurinn lék um berar rasskinnar - hljómar ljóðrænt - en okkur fannst það ekki svo sætt.

Erla er ekki til í að ég gefi Inga svona "dress" í afmælisgjöf.

Hún ætlaði sko að segja konunum í leikskólanum hvað bar fyrir augu hennar í göngunni - og 4 ára krakkar með "rassa" áhuga - nutu þess að horfa á þetta.

Annars er ekkert að frétta, Ingi liggur reyndar heima, að drepast í bakinu, eins og sagði við Snjólf í morgun þá "notaði" ég hann svo rækilega um helgina að hann er bara búinn eftir það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Ingi í leðri athyglisverð hugmynd

Kristberg Snjólfsson, 14.8.2007 kl. 16:38

2 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Eða ekki!

Kristján Kristjánsson, 14.8.2007 kl. 23:23

3 identicon

Gay Pride hvað?

Næst eigið þið auðvitað að vera þessa helgi á Dalvík þar sem aðal stuðið er, nóg af tjaldstæðum í garðinum.  Í ár voru bara tvö stór hjólhýsi, fellihýsi og tvö tjöld og nóg pláss eftir. Já og rúmlega 400 manns í súpu á föstudagskvöldið

Kveðja að norðan Gerða Maja og Gummi

Valgerður M. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 19:50

4 Smámynd: Lauja

Já, við eigum gott boð inni á næsta ári - það hefði verið virkilega gaman. 

Tanja var ekki á Sigló þetta árið - en við allavega nutum þess að fara í bæinn og skoða mannlífið.

 Ætlum síðan að kíkja í bæinn aftur um næstu helgi - við erum að verða óttalegar "miðbæjarrottur" - hmmm.

Við biðjum að heilsa.

Lauja, 16.8.2007 kl. 22:31

5 Smámynd: Grumpa

gaurinn í síðu leðurlendaskýlunni var líka foxy, svona eins og karlkyns Manowar grúpía 

Grumpa, 16.8.2007 kl. 22:51

6 Smámynd: Linda Ásdísardóttir

Ég þarf endilega að skella mér í Gay Pride göngu, hef ekki séð eina einustu.

Linda Ásdísardóttir, 16.8.2007 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband