Tognun
24.8.2007 | 23:14
Börnin mín eru í einhverju kappi í þessu - Andri tognaði á fæti í dag.
Ingi fór með Andra upp á Slysó í dag og saman biðu þeir í 5 klukkutíma eftir að komast að ....
..... looooksins þegar þeir komust inn - voru þeir inni í 2 mínútur - ekkert hægt að gera - hann jafnar sig fljótt á þessu - þetta er mjög sársaukafull tognun - en hann jafnar sig fljótt á henni - ætti janvel að ná að stíga í fætinn á þriðjudag.
Á morgun er ættarmót - og síðan er Valshátíð - þannig að ég fer á ættarmótið (endar er það mín ætt) - meðan Ingi fer á Valshátíðina.
Annars þá er allt gott að frétta af okkur - fyrir utan tognunina.
Skólinn byrjaður - það er ágætt... þá kemst aðeins meiri regla á svefntíma barnanna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.