Erla er farin að plana.......
5.11.2007 | 20:49
..... afmælisveisluna sína. Þó ennþá séu þó nokkrir dagar í afmælið - eða þann 28. nóvember. Hún er búin að biðja mig um að baka 4 afmæliskökur - 2 stráka- og 2 stelpukökur. Súperman, Batman, Bratz og Barbí... - týpískar kökur. Ég reyni að snúa henni - og gera einhverja eina skemmtilega. Kannski "rúmköku" - þó ekki alveg eins djarfa og ég gerði fyrir Möttu og Eika.....
Ég er svo sem ekki búin að samykkja þetta - en hún hefur tröllatrú á "bökunarsnilld" mömmu sinnar - þannig að ég þarf að fara að skoða bækur með henni og "snúa" henni frá þessum "4" kökum.
Eins og þið vitið flest þá á hún sama afmælisdag og pabbi sinn (hann fékk nefnilega einstaklega veglega gjöf það árið......) en hún er ekkert æst í að láta pabba sinn eiga of mikið í þessum degi - hann á að snúast um hana.... enda nær hún að snúa pabba sínum um fingur sér - endalaust
Hún er með það á hreinu að hún á afmæli á undan jólunum og finnst hálf asnalegt að vera farin að sjá jóla- þetta og hitt - og hún er ekki búin að eiga afmæli !
Hún er ekki farin að biðja um neitt í afmælisgjöf - aðeins að fá þessar afmæliskökur - af því hún ætlar að bjóða vinum sínum af leikskólanum heim í afmælisveislu....... kemur í ljós hvað verður..... kannski endar þetta á því að hún nær að snúa mömmu sinni um fingur sér....
Athugasemdir
Hún er svo mikil dúlla er hægt að segja nei við hana, enga leti verður að baka 4 kökur og bjóða öllum af leikskólanum í veislu líka
Kristberg Snjólfsson, 6.11.2007 kl. 10:11
verða ekki allir í leikskólanum að fá að borða lika
Margrét M, 6.11.2007 kl. 10:50
Rúmkakan góða var ógleymanleg og vakti mikla lukku hjá börnum og fullorðnum, jafnvel meiri en sjálf brúðkaupstertan. Þórdís biður að heilsa Erlu, hún er líka farin að hlakka mjög til afmælisins.
Matthildur B. Stefánsdóttir, 14.11.2007 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.