Það sem Erlu dettur í hug að segja.......
15.8.2008 | 10:03
Hún er stundum svo fyndin þessi elska.......
Tanja fór með hana út á leikvöll í fyrrakvöld. Þar er tæki sem krakkar setjast í - stýri í miðjunni - þannig að þau geta farið hring eftir hring á ógnarhraða. Tanja setti hana upp á þetta - og sneri henni (hún er sko spennufíkill - þá er ég að tala um leiktæki)....... Tanja hætti síðan að snúa - og á endanum valt hún útúr ringluð af tækinu - augun í henni hringsnérust - og hún sagði við systur sína:
"Hvað gerðir þú eiginlega við mig.... hentir þú mér í plastpoka út í geim??" ...Tanja grenjaði úr hlátri meðan hún sagði þetta - með augun ranghvolfandi í höfðinu......
Annars þá gengur lífið sitt vanagang - er að koma helgi.... íha eitthvað skemmtilegt verður á döfinni...... og ætla ég að elda einhverja tilraun oní liðið á morgun....... ekki búin að ákveða hvað það verður
Athugasemdir
Haha hún er yndisleg þessi frænka mín Þau eru svo einlæg þessar elskur. Vildi kvitta fyrir mig kveðja Telma.
p.s ég kíki á þessa síðu líka sem þú vitnar kveðja
Telma (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 16:41
Já, það er oft svo gaman að hlusta á hana, skemmtilegar pælingar hjá þessum elskum.
Lauja, 19.8.2008 kl. 21:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.