Ég er svo dofin þessa daga.....
10.8.2009 | 20:36
... sem er svo sem ekkert skrítið þar sem elsku besta og yndislega mamma mín dó í gær.
Ótrúlegt hvað eitt fall getur leitt af sér, þegar maður er orðinn lélegur til heilsunnar.
Hins vegar huggar maður sig við að nú sé hún laus úr þeim líkama - sem hún var orðin svo ósátt við. Ég trúi því að nú sé hún dansandi við pabba - glöð og ánægð - brosandi sínu fallega brosi - jafnvel farin að grípa í penslana sína - og galdra fram listaverk.... verst þó að ná ekki að sjá þau hjá henni.
Athugasemdir
Sendum þér og þínum samúðarkveðjur að norðan.
Gerða Maja og Gummi
Valgerður M. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.