Þá er Tanja búin í samræmdu prófunum.......
16.9.2009 | 14:31
... og er afskaplega glöð og sæl með það - þessi elska
Allt gott af okkur að frétta, Sindri minn átti 13. ára afmæli þann 5. sept. s.l. - orðinn unglingur..... ekki þó kominn með unglingaveiki - þessi elska - alltaf svo ljúfur og góður.... alveg eins og mamma sín
Héldum bekkjarafmæli fyrir hann s.l. laugardag - sem heppnaðist ótrúlega vel. Við útbjuggum ýmsa smárétti sem slógu heldur betur í gegn - enda allir orðnir leiðir á Dominos-pizzu afmælisveislum. Einn vinur Sindra sagðist ætla að borða svooooooo mikið - og ætlaði ekki að hætta fyrr en hann þyrfti að æla! Ég hafði nú gaman af að heyra það !
Við útbjuggum litla sæta hamborgara - ég pantaði mini-hamborgarabrauð - og þeir slógu gjörsamlega í gegn - hrikalega flottir á borði - og mjög bragðgóðir. Ég útbjó mini-pizzur, ítalskar kjötbollur og kjúklingaspjót. Aðeins öðruvísi afmæli - sem sló gjörsamlega í gegn.
Auðvitað voru kökur á eftir - sem þeir gerðu sömuleiðis góð skil.
Við erum með billjarðborð og fótboltaborð - og spiluðu þeir mjög mikið, horfðu á mynd og enduðu síðan úti í fótbolta - einhverjir laumuðust þó til að kíkja í "Playstation-tölvuna" - þeir voru alsælir allir saman - og Sindri þó sérstaklega - af því að vinunum fannst svo gaman. Þeir voru 14 vinirnir - en ekki með neitt vesen eða leiðindi.
Ég ákvað um daginn að breyta mér alveg...... fór og lét fjarlægja hárlubbann sem ég var búin að fá gjörsamlega nóg af Er núna með stutt og dökkt hár - algjör skvísa ! ... er afskaplega ánægð með þetta nýja "lúkk". Einn vinnufélagi hafði á orði við mig hvað ég væri hrikalega flott svona - og hvort manninum þætti ekki gaman að fá "nýja konu" í rúmið .....að sjálfsögðu sagði ég að minn maður væri afar ánægður með það - ehemm...... fer ekki nánar út í það
Ég fór á djammið með vinnunni fyrir tæpum 2 vikum, vorum að kveðja einn vinnufélaga - sem hætti hjá okkur í sumar. Við byrjuðum á Spot..... pizzur og bjór - fórum síðan á Dillon - þar sem vinnufélagi (og fyrrverandi hljómsveitarmeðlimur Fræbblanna) - var að spila með hljómsveitinni HFF (Helvítis Fokking Fokk) - ekki léttasta danshljómsveit - en við skemmtum okkur konunglega - dönsuðum út í eitt - og margir voru duglegir að staupa sig....... sumir voru nú orðnir dálítið drukknir og valtir á fótunum - ekki ég þó....... Enduðum við nokkur síðan kvöldið á Barböru (hinsegin stað) - dönsuðum eins og okkur væri borgað fyrir - og skemmtum okkur svooooo vel...... ótrúlega skemmtilegt kvöld - lítill hópur - aðeins hæðin mín þó ekki allir - við vorum u.þ.b. 12 - en skemmtum okkur öll afar vel.
Síðasta föstudagskvöld fór Ingi hins vegar á djammið - Versló djamm - orðin x..... ár síðan hann útskrifaðist. Hann skemmti sér mjög vel - þó hann hafi ekki dansað af sér lappirnar eins og frúin hans vikunni áður
Kominn tími á smá blogg - þarf e.t.v. að vera duglegri að setja örlítið inn....... ef tími gefst til.
Athugasemdir
Jónína Björg var líka að klára samræmdprófin. Ákvað að flýta sér aðeins og tekur 9. og 10. bekk í vetur. Annars erum við hér fyrir norðan í nokkuð góðum gír. Það er vetrarfrí hjá mér og stelpunum um miðjan okt. og þá ætlum við að koma suður. Förum í bústað með Gumma fjölskyldu en vonandi náum við aðeins að sjá framan í ykkur.
Valgerður M. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2009 kl. 20:38
Kraftur í stelpunni ;) Gott að heyra að allt sé fínt af ykkur að frétta, það sama á við um okkur. 3 yngri fara í vetrarfrí í enda október, við ætlum þó ekki að taka frí með þeim.
Ef þið kíkið í bæinn þá náum við vonandi að hittast í eins og einum kaffibolla. Kær kveðja til ykkar - Lauja
Lauja, 22.9.2009 kl. 08:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.