Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Lokaður á hótelherbergi með unglingspilt ....

Þessi fyrirsögn hljómar ekki vel - en....... 

Ingi og Andri fóru aftur til Parísar s.l. fimmtudag.  Ingi var hálf eitthvað tuskulegur en að sjálfsögðu drifu þeir sig þar sem þeir áttu miða á tónleika síðasta laugardag með Genesis.

Þeir eru ekki komnir á hótelið fyrr en um miðnætti og var Ingi gubbandi á föstudeginum, þannig að Andri hékk yfir pabba sínum horfandi á TV og hangandi í PSP fram eftir degi - reddaði deginum hjá honum - meðan Ingi skrapp reglulega á klósettið.  Þeir komast ekki út af hótelinu fyrr en seinnipart föstudagsins, þegar Ingi er aðeins orðinn hressari.

Á laugardagskvöldið voru þeir báðir í fínu formi og Ingi í sæluvímu á tónleikunum - þvílík sæla hjá þeim !  Á sunnudag skila þeir síðan herberginu um hádegi - eiga ekki pantað flug fyrr en um kvöldið - en þá er Andri orðinn veikur. 

Allar verslanir eru lokaðir í París á sunnudögum, eitthvað sem maður gerir ekki ráð fyrir, enda er alltaf allt opið á litla Íslandi.  Hefði verið ágætt að vera í verslunarmiðstöð með öruggt klósett. 

En þeir eru sem sagt á vergangi í París á sunnudeginum - og farnir að þekkja klósett hér og þar um borgina alveg ágætlega. 

Kaupa sér mat - til að komast á klósett - en skila disknum fullum af mat til baka - kokkurinn álítur þá skrítna og yppir öxlum.  En þeir ná allavega að drekka gosið og Andri hafði lyst á ís í eftirrétt.   Hvað skyldi þjónninn hafa hugsað ??   hmmmmm!

Ingi var jafnvel farinn að hafa áhyggjur af að komast ekki í flugið - en það gekk - og voru þeir þvílíkt ánægðir að komast aftur heim.  Í rúmið sitt - og aldrei hafa þeir áður á ævinni séð klósettið heima í hillingum!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband