Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
Mamma.... ég elska þig meira en.........
26.4.2009 | 10:42
...........rassaperlur!!! .....kallaði Erla á eftir mér út um gluggann í gærdag þegar ég var á leiðinni út í bíl......
"já já - ok... elskan bæ" - kallaði ég til hennar og hélt áfram út í bíl sem var lengst á plani
þá heyrðist í minni - hrópa aðeins hærra en áður - enda var ég komin lengra....... "mamma - ég elska þig meira en tvö svört tippi! " svo hló hún....." ógeðslega fyndið !!!
.....f.ck - hugsaði ég - kallaði til hennar og sagði henni að hætta þessu!
Sem betur fer var planið ekki fullt af fólki og börnum - aðeins ég og einn nágranni - sem hefur áreiðanlega skemmt sé yfir þessari sérkennilegu kveðju "dóttur til móður".
"Little Britain" - þættirnir eru í uppáhaldi á heimilinu - og hefur daman mín verið fljót að grípa þessa "frasa" frá systkinum sínum...... sem nota þá - ásamt fleirum.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)