Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Flott lag
31.8.2009 | 14:02
Jamm....... einhver sammála ?
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Endilega lesið þessa frétt-
15.8.2009 | 10:13
Ágætt fyrir fólk að vita hvernig framkoma hjá sumum fyrirtækjum er í garð annara.
http://visir.is/article/20090814/FRETTIR01/843473248
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er svo dofin þessa daga.....
10.8.2009 | 20:36
... sem er svo sem ekkert skrítið þar sem elsku besta og yndislega mamma mín dó í gær.
Ótrúlegt hvað eitt fall getur leitt af sér, þegar maður er orðinn lélegur til heilsunnar.
Hins vegar huggar maður sig við að nú sé hún laus úr þeim líkama - sem hún var orðin svo ósátt við. Ég trúi því að nú sé hún dansandi við pabba - glöð og ánægð - brosandi sínu fallega brosi - jafnvel farin að grípa í penslana sína - og galdra fram listaverk.... verst þó að ná ekki að sjá þau hjá henni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verslunarmannahelgin
2.8.2009 | 22:16
Eyddum henni í bænum. Skúraði stöðina í gær og tók bílinn gjörsamlega í gegn! Lá við að ég færi með eyrnapinna á hann - enda er hann orðinn þvílíkt hreinn og fínn ! Húrra fyrir mér ! Á meðan ég dundaði mér við þessi þrif - tók Ingi lagerinn í gegn..... enda var orðin þörf á því.
Ingi tók alla gríslingana okkar á leikinn áðan Valur - KR - en þau eru ekki mikil lukkudýr - þessar elskur og tapaði Valur......
Ég dundaði mér við að elda oní svangt liðið á meðan - veislumat að sjálfsögðu.... og ákváðum við hjónin að opna 1 rauðvínsflösku svona til tilbreytingar. Ég setti "playlista" á í tölvunni - og langar mig til að setja 1 lag hingað inn.... reyndar mun fleiri - en þetta lag heyrði ég fyrst þegar við Ingi vorum að byrja saman...... og hreifst ég strax af því.... hef ekki heyrt það lengi - en það er alltaf jafn indælt.
Tónlist | Breytt 3.8.2009 kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)