Færsluflokkur: Bloggar
Tími til kominn.......
10.11.2008 | 14:19
.... að blogga örlítið, búin að vera hálf löt við það - nóg að gera alltaf hreint á stóru heimili.
Við systur fórum í sumarbústað um þarsíðustu helgi, ég blikkaði tengdaforeldra mína - sem eru náttúrulega yndislegust - og fengum við bústaðinn þeirra lánaðan.
Lögðum af stað eftir hádegi á föstudegi - með fullan pallbíl af áfengi - og sushi..... (sem Ingi öfundaði mig geeeeeðveikt mikið af ) - ásamt sundfötum, skemmtilegri tónlist, naglasnyrtidæmi alls konar - og úttroðnum snyrtitöskum af allra handa yngingarkremum..... eins og við þyrftum á því að halda........
en það sakar allavega ekki
Við höfðum það afskaplega gott, ekkert svo kalt - og potturinn varð á endanum vel heitur og góður, vorum við afar penar, skandöluðumst ekkert - hlupum ekki um naktar - til að hrella nágrannana - nebb...... höguðum okkur eins og eðalskvísur gera! Hefðum í raun verið til í mun lengri tíma saman, ætluðum að gera ótalmargt.... en tíminn flýgur alltaf hreint á ógnar hraða
Síðasta föstudagskvöld var ég á smá vinnudjamm - aðeins við skvísurnar - og var afskaplega gaman. Fórum í Kramhúsið þar sem "Kúbverskur sjarmör" að nafni Juan..... kenndi okkur að dansa "Salsa" .......neeei hann var lítill og ljótur - annað en "hönkið" sem beið eftir mér heima.... þó svo hann dansi ekki salsa
Við fórum síðan út að borða á Vegamót - mikið kjaftað - hlegið og nutum við tímans saman, enduðum síðan í partýi heima hjá Siggu og Svenna - en þau búa í Skugganum (ég er búin að þekkja þau í yfir 20 ár....... vann hjá þeim á Radíóstofunni hér í gamla daga - eru þau alltaf jafn yndisleg ).
Ég var afar pen í drykkjunni - þannig að ég var í góðum gír á laugardeginum - heimsótti mömmu og hjálpaði henni með ýmsa hluti. Helginni var síðan eytt við hina ýmsustu iðju með fjölskyldunni.
........ ég er meira að segja farin að fá smá "jólafiðring" í magann...... þau verða komin áður en við vitum....... Mig langar til að prófa að baka laufabrauð, og er ein sem vinnur með mér búin að bjóðast til að lána mér e-a laufabrauðsgræju - ég verð að þiggja það - og plata familíuna í að baka með mér.... gæti orðið mjög skemmtilegt.
Erlu og Inga afmæli nálgast óðfluga.... þann 28. nóv. og er Erla farin að bíða spennt - ætlar að bjóða öllum bekknum - og ég á að baka þetta - gera þetta - kaupa flotta diska og glös........ æ.... hún er svo spennt þessi yndislega skotta.......
Nóg í þetta skipti....... blogga fljótlega aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Afmælisbarn dagsins.......
23.10.2008 | 08:26
Yndislegi strákurinn minn hann Andri á afmæli í dag..... orðinn 16 ára....... wow...... hvað tíminn flýgur!
Annars þá var miðannarmat hjá honum í síðustu viku....... hann fór í Tækniskólann á upplýsingatæknibraut - og er mjööööög ánægður þar. Er með 100% mætingu og A og B í þeim fögum sem hann er í...... stendur sig alveg ótrúlega vel þessi elska. Það er svo mikilvægt að þau komist að í því námi sem þau hafa áhuga á.
Til hamingju með daginn elsku Andri minn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Erla kom heim með bæði hnén út úr buxunum........
21.10.2008 | 20:48
...... vel plástruð og blóðug.........
Hún var að hlaupa í frímínútunum undan strák í 5 eða 6 bekk - hann var að elta hana - og vildi giftast henni........
........þannig að hún tók þetta líka rosalega til fótanna....... leist ekki alveg á þetta - og hentist í loftköstum á skólalóðinni...... endaði síðan hjá gangaverði sem veitti henni "áfallahjálp" - og plástraði hana..........
.......... skyldi þetta verða það sem kemur - ef einhver gerist of ágengur við hana - þá tekur hún til fótanna..........
ok... ok..... skiljanlegt hjá 5 ára skvísu - að hún vilji ekki strax ganga í hjónaband !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún náði besta bílastæðinu......
21.10.2008 | 20:37
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fínar fréttir í gærkvöldi.......
17.10.2008 | 10:34
Ég fór í gærkvöldi að sækja Tönju sem var hjá vinkonu sinni niðri í Skipholti, heyrði 10 fréttirnar - og flissaði hálf móðursjúklega yfir þeim
Nýjar rannsóknir sýna að konur sem drekka mikið KAFFI - allavega 3 bolla á dag - séu síður í hættu að fá brjóstakrabbamein........... íha....... hugsaði ég - og flissaði yfir þessum nýju rannsóknum - alsæl - enda er ég ægilega háð þessum eðaldrykk - og drekk yfirleitt dálítið meir af honum en 3 bolla á dag.
.....síðan endaði þessi "afar skemmtilega" frétt á þessum orðum: of mikil kaffidrykkja kvenna getur hins vegar haft áhrif á brjóstastærð þeirra - þ.e.a.s. þær sem drekka mikið kaffi eru með minni brjóst! Guði sé lof að ég drekk þetta mikið kaffi hugsaði ég - annars væri ég eins og Dolly Parton!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki kreppubrandari dagsins.......
15.10.2008 | 10:50
....... þar sem "kreppubrandarar" ganga manna á milli nú í "kreppunni" - ákvað ég að vera öðruvísi...... og setja annarskonar brandara hér inn - skemmtið ykkur við þessa lesningu
Þessi skeði á Elliheimilinu Grund fyrir skömmu:
Karlkyns vistmaður ákvað að gera svolítinn usla í samkvæmislífinu á Grund og auglýsti kynlífsþjónustu á hurðinni hjá sér gegn greiðslu.
Ekki leið á löngu þar til gömul vistkona bankaði hjá karli og spurði um þjónustuna.
Hann sagði henni að einn á gólfinu kostaði 500 kall, einn á borðinu 1000 kall en 4000 kall ef farið væri í rúmið.
Hún fór í veskið og snaraði fram 4000 kalli.
"Jæja, svo þú ætlar að fá einn í rúminu" sagði sá gamli.
"Nei, nei" sagði kella, "ég ætla að fá´ða 8 sinnum á gólfinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir sem ekki hafa lengur efni á að styrkja........
14.10.2008 | 15:42
....... líkamsræktarstöðvarnar - verða ekki fyrir vonbrigðum með þessar æfingar....... nú til að brenna aðeins fleiri hitaeiningum - er þá ekki upplagt að setja á svið smá "leikrit"........
Ég fann þetta á síðu hjá "bloggvini" - og fannst þetta svo asssgoti skemmtileg lesning - og fínt sparnaðarráð í kreppunni
Það hefur verið vitað frá örófi alda að kynlíf er hin fínasta heilsubót. Fólk er að brenna umtalsverðum kaloríum og eru flestir sammála um að þetta sé einn skemmtilegasti æfingarmátinn samanborið við stigvél, tröppu eða hlaup. Það er komin út splunkuný könnun þar sem þetta æfingarform var kannað niður í kjölinn og reiknað út nákvæmlega hversu mörgum kaloríum við værum eiginlega að brenna miðað við hinar ýmsu athafnir. Hér eru niðurstöðurnar:
Að klæða hana úr fötunum:
Með hennar samþykki................ 12 kaloríur
Án hennar samþykkis................ 187 kaloríur
Að opna brjóstahaldarann:
Með báðum höndum.................. 8 kaloríur
Með annarri hendi..................... 12 kaloríur
Með tönnunum........................ 85 kaloríur
Að setja á sig getnaðarvörn:
Með stinningu........................ 6 kaloríur
Án stinningar........................ 315 kaloríur
Undirbúningurinn!
Reynt að finna snípinn.............. 8 kaloríur
Reynt að finna G blettinn.......... 127 kaloríur
Stellingar:
Trúboðastellingin.....................12 kaloríur
69 liggjandi........................... 78 kaloríur
69 standandi......................... 112 kaloríur
Hundastellingin...................... 216 kaloríur
Hjólbörurnar......................... 326 kaloríur
Ítalska ljósakrónan................ 923 kaloríur
Fullnægingin:
Alvöru................................. 112 kaloríur
Að fake-a það........................ 345 kaloríur
Eftir fullnæginguna:
Liggja í rúminu og faðmast........ 18 kaloríur
Standa strax upp......................36 kaloríur
Útskýra af hverju þú stóðst strax upp..823 kaloríur
Að fá stinningu númer 2 / Ef þú ert:
20 - 29 ára........................... 36 kaloríur
30 - 39 ára........................... 80 kaloríur
40 - 49 ára........................... 124 kaloríur
50 - 59 ára........................... 972 kaloríur
60 - 69 ára........................... 2915 kaloríur
70 ára og eldri................... Enn verið að reikna kaloríurnar
Að klæða sig í á eftir:
Rólega................................ 32 kaloríur
Í flýti................................ 98 kaloríur
Með pabba hennar á hurðinni..... 1218 kaloríur
Með konuna þína á hurðinni.......3521 kaloríur
Ef þið eruð í með það í huga að brenna nokkrum kaloríum getiði reynt eitthvað af þessu
....... svo er maður að djöflast á einhverjum "brennslutækjum" í ræktinni -og er rétt að ná að brenna 3- 500 cal. - HALLÓ..... er virkilega eitthvað vit í því.......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Horfið þið oft á Klown.......
14.10.2008 | 11:01
....... spurði ein systir mín hinar 2 um síðustu helgi...... ég var reyndar ekki mætt - aðeins of sein - en stelpunum fannst þær vera spurðar "hvort þær horfi oft á klám" .........
Smá misskilningur - getur valdið fjörugum og fyndnum umræðum...........
...... ég held að systrum mínum hafi fundist sú yngsta vera að brydda upp á aðeins öðruvísi umræðuefni í "saumaklúbbnum"
Frekar fyndið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Pálmatré...
9.10.2008 | 12:17
... ég fékk mér "pálmatré" að borða í hádeginu í dag........ ótrúlegt - en satt!
Á fimmtudögum er alltaf boðið upp á aðeins betri mat í hádeginu í vinnunni - en "pálmatréð" var þó aðeins einn lítill hluti af því sem var á salatbarnum - mjúkt undir tönn - útlitslega minnti þetta mig á blaðlauk
Maður má ekki vera matvandur og verður að prófa nýja hluti - ekki satt?
Efast þó um að mín fjölskylda myndi brosa sínu blíðasta til mín ef ég færi að bjóða þeim upp á "pálmatré" í matinn.
Þar sem neyðarástand er í landinu - og fólk farið að hamstra vörur úr stórmörkuðum - er þá ekki ágætis hugmynd að fara að éta stofublómin - allavega í neyð - sjóða þau niður... hmmm bara hugmynd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skilnaðir...
9.10.2008 | 12:03
.... ástæður geta verið fjölmargar - en þessi er aðeins grátbrosleg....... eitthvað meira hlýtur að liggja að baki........
![]() |
Söguðu húsið í tvennt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)