Færsluflokkur: Bloggar
Bloggleti....
4.3.2009 | 20:05
.... jamm hún hrjáir mig víst - er reyndar talsvert á "Fésbókinni" góðu - sem er hinn mesti tímaþjófur - þó skemmtilegur.
Annars er allt gott af okkur að frétta, Smurstöðin fer að flytja - dregst alltaf eitthvað - átti að vera í byrjun febrúar - en sennilega ekki fyrr en um miðjan mars. Nýi staðurinn er afskaplega fínn - en þá er að reka strákana í að hafa hreinlegt...... en er ekki erfitt að kenna gömlum hundum að sitja - Ingi getur e.t.v. farið í þessa líku fínu verslun sem er við hliðina á nýja staðnum - og fjárfest í einni góðri svipu eða svo.......
Mamma er enn óttalega slöpp, og fór á Sunnuhlíð í gær, ekkert alltof sátt með það, vonandi að hún verði ánægð þegar hún venst þessari breytingu.
Erla er sjúk í að leika - alla daga við vini sína - sem er afskaplega jákvætt. Hún og Hrefna besta vinkona hennar ætla að prófa að fara í barnakórinn í Grafarvogskirkju - það verður áreiðanlega gaman hjá þeim ...núna eru allir svo miklar rúsínur - eða rúsínubollur í hennar augum - og er hún stundum ansi fyndin þessi skotta. .....hún er þó allavega hætt að tala um hvað allir séu mikil rassgöt!
Nóg að gera í vinnunni, árshátíð á næsta leiti, sem haldin verður í Vodafonehöllinni......... klassastaður .......og næsta föstudagskvöld ætlum við sytur að hittast, kjafta saman um landsins gagn og nauðsynjar.... og kannski að fá okkur aðeins í tána........ það verður fínt.
Læt þetta duga í þetta skiptið - má ekki alveg gleyma mér í "fésbókarheiminum"- og verð að setja hér inn eina og eina færslu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hver vill sjá Davíð Oddsson í sturtu ??
5.2.2009 | 13:35
..... börnin hafa eyru.......
Við Ingi vorum að tala saman í gærkvöldi - og heyrðist í okkur "Fólkið vill fá Davíð Oddsson í burtu"..... þá hafði Andri heyrt lauslega í okkur - og kallaði "ha.... hver vill sjá Davíð Oddsson í sturtu" ????
....... maður hefði nú getað fléttað eitthvað krassandi - út frá þessari misheyrn - verða ekki kjaftasögurnar til á þann veg....
.... börnin heyra það sem þeim finnst spennandi...... ef ég hefði sagt að Andri hefði þurft að taka til - þá hefði hann ekki "heyrt" í okkur.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Helvítis fokking fokk !!!
2.1.2009 | 15:43
Ég hafði mjög gaman af skaupinu - auðvitað var það hálf kvikindislegt á köflum - en ég hafði gaman af því.
Væri alveg til í að sjá það aftur
Ætli fyrirsögnin verði ekki næsti "frasi" hjá unglingunum...............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég óska öllum gleðilegs árs
1.1.2009 | 20:40
Búin að vera frekar löt í blogginu, en það er bara þannig.
Nóg að gera í vinnu sem og á stóru heimili.
Jólin liðu allt of fljótt, heima á aðfangadag og jóladag, á öðrum í jólum vorum við 22 í mat hérna, hrátt naut í forrétt, lamb í aðalrétt og eftirréttaúrval á eftir, allt heppnaðist afar vel og mjög gott að éiga 2 frídaga eftir..... verð að segja að´eftir svona veislu - dýrka ég uppþvottavélina (ok ok dýrka hana svo sem alltaf).
Brjáluð vinna hjá mér og þessa 2 vinnudaga milli jóla og nýárs var ég að vinna frameftir til 22 annan daginn en 23 hinn daginn. Það var þó í góðu lagi - var þó orðin hálf heiladauð og augun að verða "skjá"-laga eftir þetta.
Í gær fórum við í mat til Kidda og Möggu - tengdó komu einnig, afar góður matur hjá okkur - og smá "tertuúrval" - til að sprengja - engan vegin þó í líkingu við það sem áður hefur verið.
Erla var orðin frekar þreytt á þessum skotum - og rétt eftir miðnætti bað hún mig að koma inn með sér, hún væri búin að sjá öll ljósin - þetta væri eiginlega allt eins......
Erla plataði pabba sinn með sér í barbíleik í gær, - þó kom undarleg setning frá Inga í þessum leik. Ein barbídúkka var með barn í maganum - Erla var búin að taka barnið - en vildi koma því aftur á réttan stað - og bað pabba sinn að hjálpa, þá sagði Ingi svo snilldarlega "ég kann ekkert að setja barn í magann" !!!!!!! -ég leit á hann - og spurði hvort hann kynni það virkilega ekki - ég hefði nú allt aðra reynslu af því ! - Hann glotti nú til mín - þegar hann fattaði hvað hann hafði sagt!
Dagurinn í dag var hálfgerður letidagur, sofið frameftir - ég heimsótti reyndar mömmu - og var Hrabba hjá henni á sama tíma. Ég ákvað að elda bita af hamborgarhrygg sem var til - og ætlum við að eyða kvöldinu í algjörri leti -´finna DVD mynd til að liggja yfir - áður en rúmið tekur við.
Þó er ljúft að þurfa aðeins að vinna í einn dag - síðan er komin helgi.
Gleðilegt ár allir saman - megi nýja árið verða gæfuríkt og fullt af skemmtilegheitum fyrir ykkur öll !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skóinn út í glugga í kvöld......
11.12.2008 | 15:29
Já, fyrsti jólasveinninn kemur víst í nótt...... og er spenningur hjá litlu músinni
Börnin mín hafa alltaf hlakkað til þessa dags - frekar þó held ég út af því að skórinn fer í gluggann í kvöld - ekki út af því að ég á "afmæli" - hmmm........
Margir búnir að syngja fyrir mig í dag - bæði familían og vinnufélagar - mjög gaman
Jólahlaðborð var í vinnunni í dag - þannig að allir borðuðu á sig gat - eingöngu mér til heiðurs - reyndar kom einn upp til mín - hann er langur og mjór alveg eins og I í laginu - en í dag leit hann út eins og Þ gerði það bara fyrir mig
Ingi ætlar að elda eitthvað gott fyrir mig í kvöld - og dekra við mig út í eitt....... - þannig að ég verð eins og Prinsessan á bauninni í aaaaalllllllt kvöld - ætla að njóta þess í tætlur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jóla.... jóla... jóla.....
9.12.2008 | 12:50
.....skap færist yfir mann - enda var mín afar dugleg um helgina að gera fínt heima - skreyta og baka - óje
Vinnan er flutt upp í Urðarhvarf - þannig að nú er ég afar fljót í og úr vinnu - líst mjög vel á mig - stórt og bjart - sakna þó gamla staðarins.......
Held ég verði að smella inn einu jólalagi - ....klikka ekki á því
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19 dagar til jóla....... OMG !
5.12.2008 | 12:41
Af hverju í ósköpunum er tíminn svona fljótur að líða - hefur einhver skýringu ?
Annars þá er síðasti dagurinn minn í Borgartúninu í dag - er að flytja upp í Urðarhvarf - eða "Mannshvarf" eins og sumir innanhúss húmoristar segja - 8 hæða ferlíki - og ætli verði ekki margir sem hverfa í sitt horn ! Var í gær að pakka niður í vinnunni - og flyt á eftir - aðeins styttra verður í vinnuna að heiman - en ég mun sakna þess að vera ekki í Borgartúninu. Verkstæðisstrákarnir héldu "kvennfélags"-kveðjukaffi fyrir okkur áðan - og felldu tár - hins vegar hélt "Georg" ekki ræðu fyrir okkur - og kannaðist ekki við að vera formaður "kvennfélagsins".......
- vildi ekki láta líkja sér við "Bjarnfreðarson" - nafna sinn....... hahaha...
Annars þá er Andri - litla barnið mitt farið að sækja ökutíma - hin ofur rólega Þórlaug fór með hann í ökuferð í fyrrakvöld og gekk vel - Ingimundur æsti treysti sé ekki að fara með drenginn - hann hefði keyrt á fyrsta ljósastaur með hann sem "leiðbeinanda" ! - nei kannski ekki - en Ingi sagði að væri mun sniðugra að senda mig með hann - held að það sé alveg rétt hjá honum
Ætla að reyna að vera ofur húsmóðurleg þessa helgi - svona til tilbreytingar - baka piparkökur og jafnvel að reyna að baka laufabrauð.... ...kemur í ljós hvernig það gengur.
Í kvöld erum við Ingi að fara á jólahlaðborð með hans vinnu - förum í Humarskipið, aldrei áður farið þangað - verður gaman að prófa þann stað.
Ætli ég verði ekki halda mig við að smella inn einu jólalagi í dag, lagið er með hljómsveit sem heitir Weezer, heitir "Christmas song" - og já ég er hrifin af þessu lagi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hver man ekki eftir þessu lagi?
4.12.2008 | 08:36
Var mjög vinsælt þegar ég var algjört unglamb og falleg...
Nú er ég víst aðeins ung ........ og falleg
Ég er alltaf skotin í þessu lagi - og Tanja heldur að þetta sé sitt uppáhaldsjólalag .....annars eru til afskaplega mörg jólalög sem ég er hrifin af - en einnig er til alveg hræðilega mikið af leiðinlegum jólalögum.... smekkur manns er misjafn - sem betur fer - en hér kemur lagið:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styttist í jólin.......
2.12.2008 | 08:25
........ það er víst nokkuð ljóst að þau verða komin áður en við vitum af.
Annars er allt gott af okkur að frétta, afmælishöld voru um þessa helgi og heppnaðist afskaplega vel, góð mæting og gaman að fá alla í heimsókn. Veitingum gerð góð skil og allir fóru heim sælir og glaðir
Fjölskylduafmælið var á laugardag - síðan hélt fjörið áfram og bekkurinn mætti á sunnudag, voru þau afskaplega góð þessar elskur, fóru í pakkaleik, setudans og allir fengu verðlaun - þannig að þau fóru öll sátt heim til sín, enduðu á að teikna og lita - ótrúlega góð - þau horfðu reyndar á "Mamma Mia" myndina með öðru auganu.
Sindri Snær bekkjarbróðir Erlu fór þó ekki heim til sín fyrr en kl. 20:00 - en afmælið var búið kl. 17:00 - þau Erla voru að leika sér á fullu - og vildi Erla endilega setja Barbie mynd á fyrir þau - hann var ekki alveg til í það - hún sagði við hann að þetta væri alveg líka strákamynd - hún væri um 2 stráka sem væru skotnir í 2 stelpum - en þær vissu ekki strax að þeir væru skotnir í þeim.......
-hún skildi ekki afhverju hann hafði ekki áhuga á að horfa á það !
Ég tók síðan jólaskrautið, og fór að setja smá upp - Sindri vildi ekkert fara heim alveg strax - var mjög forvitinn að hjálpa að taka upp úr kössunum og sjá hvað við settum upp.
En þar sem jólin eru alveg að detta inn, er þá ekki tilvalið að skella inn einu jólalagi. Þetta lag er alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér, e.t.v. ekki það jólalegasta - en ég elska þetta lag.
Fairytale of New York með "Pogues og Kirsty MacColl, vona að þið hafið jafngaman af þessu lagi og ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bestu hlutirnir kosta oft minnst........
1.12.2008 | 15:00
... sé maður svo heppin að vera vel giftur - þá er hægt að stunda svona skemmtilegheit - næstum því hvar sem er - hvenær sem er - ..... og er alltaf jafn a........ gott
![]() |
Spara pening með auknu kynlífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)