3 frábær lög fyrir svefninn.....
26.8.2007 | 22:13
Fann þetta inni á YouTube - minnir mig á - að ég verð að fara að fara að taka þennan disk og dusta af honum rykið og hlusta - yndislegt lag....
http://www.youtube.com/watch?v=jbdPUiih020
Síðan verð ég að setja inn eitt lag með þessari hljómsveit, Matta, Hrabba og Adda - minnir þetta lag ykkur á eitthvað ??
Minnir mig á þegar við bjuggum á Flókagötu - og vorum að bíða eftir pabba og mömmu frá útlöndum - og við spiluðum lög með þessari hljómsveit allan daginn til að stytta biðina..... Matta var nýbúin að kaupa plötu með þeim....
http://youtube.com/watch?v=hskKIsf-PAg
... búningarnir eru líka geeeðveikir - hvernig væri að halda ABBA partý - og allir dressaðir upp í ABBA "outfit" - væri það ekki bara snilld????? - Verðlaun fyrir besta búinginn - hver er til?????
Leyfi þessu að fljóta með - textinn er e.t.v. ekki beint sem maður syngur fyrir börnin sín á kvöldin en ég er hrifin af því
http://www.youtube.com/watch?v=AAPMUSCFVhg
Athugasemdir
ég sá fyrir 2-3 árum viðtal við Björn og Benny í ABBA (Spáiði í því, ég veit m.a.s hvað þeir heita!) og þeir upplýstu að ABBA hefðu aldrei haft stílista...ég varð samt ekkert voðalega hissa
Grumpa, 27.8.2007 kl. 16:21
Nú er ég hissa - hélt að þetta væri allt útpælt af snilldar-stílista ég hef UNUN af að horfa á myndböndin þeirra....... þú ert góða Lolla - vissi ekki að þú værir leyndur ABBA aðdáandi fyrr en fyrir stuttu
Lauja, 27.8.2007 kl. 21:10
Ógleymanlegt. Ég fékk Greatest hits plötuna í 12 ára afmælisgjöf, en ekki nýjustu plötuna sem var heitasta óskin því Rock me var uppáhaldslagið þá. Þetta var árið 1976.
Matthildur B. Stefánsdóttir, 30.8.2007 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.