Í gær fór ég í Barbí.....
18.9.2007 | 10:36
.... leik með henni Erlu minni - hvað lætur maður ekki börnin stundum plata sig út í ???
En ég tók til í draslinu hennar um helgina - það er orðið það fínt hjá henni - að hún vill fara að leika í dótinu sínu.
Þannig að í gærkvöldi sátum við 2 saman í afskaplega skemmtilegum "barbí - bratz-dýra" leik - æ- þetta var mjög gaman - versta er að ég veit hvað hún biður mig um að gera í dag þegar leikskólinn er búinn - þetta er fínt í smástund - en ekki dag eftir dag....... þó svo það sé yndislegt að eiga stundir með börnunum.
Annars þá kíkti ég til mömmu í gær - Erla fór með mér þar sem restin var á "fótboltaleikjum" - þegar Erla kvaddi ömmu sína sagði hún við hana "þú ert svo krúttleg amma - ég elska þig" - mamma varð hálf vandræðalega þegar hún sagði þetta við hana - hefur áreiðanlega ekki heyrt þetta sagt við sig í möööörg ár !
Athugasemdir
Láttu ekki eins og að þér hafi leiðst þetta
Kristberg Snjólfsson, 18.9.2007 kl. 10:57
Ok.... ok... sástu í gegnum þetta hjá mér Kiddi minn.... - jú að sjálfsögðu var þetta yndislegt - en ég kem svo sem ekki til með að nenna þessu upp á hvern dag héðan í frá........
Lauja, 18.9.2007 kl. 11:44
en ömmur ERU krúttlegar
Grumpa, 18.9.2007 kl. 11:55
Margrét M, 19.9.2007 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.