13 dagar til jóla.... og í kvöld....
11.12.2007 | 22:35
..... fer skórinn út í glugga - svona ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum...
Annars þá er í dag nákvæmlega 41 ár síðan lítil prinsessa kom í heiminn - undurfögur og æðisleg - varð síðan hálfgerður villingur en róaðist nokkuð um 18 ára aldur - þegar gæi að nafni Ingi náði að heilla hana - hún hætti að reykja - minnkaði drykkjuna..... en blótar enn....
Í dag... kom lítil prinsessa í heiminn - - - Oddný - Einar - Auður og Róbert - innilega til hamingju með litlu prinsessuna- við Tanja vorum nú búin að segja að hún myndi koma í heiminn í dag - það væri hægt að halda að við værum skyggnar....... Oddný átti ekki til orð yfir þetta þegar ég kíkti á hana s.l. sunnudag - hafði aldrei áður þurft að ganga með barn framyfir - en "daman" vildi bara sama dag og ég - T I L H A M I N G J U - - - - - 10000 - frá okkur öllum
Erla mín er mikið að spá í jólasveininn þessa dagana, Skyrgámur er fyndnastur - enda sullaði hann skyri út um allt eldhús í fyrra (djö... subba og mikið andsk.... var leiðinlegt að þrífa skyrið eftir hann daginn eftir... sem var allsstaðar.....) - en maður lætur hafa sig í það - enda man hún vel eftir því.
Þegar eldri börnin voru yngri - gerði Skyrgámur það sama og þau muna ennþá eftir subbuskapnum í eldhúsinu....... - hann skánar ekkert með árunum
Ég veit eiginlega ekki hvaða jólalag ég á að setja fyrir daginn í dag... en ég finn eitthvað.
http://www.youtube.com/watch?v=7BVtzu59feY
Var búin að finna "jólalag" með South Park - Jesus VS Santa - eeen ég komst ekki í neitt hátíðarskap á að horfa á það....... en þetta er alltaf ágætt.
Hafið það gott.......
Athugasemdir
Sendum þér mjög góðar afmæliskveðjur frá Víðimelnum.
Emil, Adda og Stefanía.
Emil Hannes Valgeirsson, 11.12.2007 kl. 23:29
Til hamingju með daginn ,,,stórt knús
Margrét M, 12.12.2007 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.