Apríl afmæli....
8.4.2008 | 21:53
....... það er alveg óskiljanlegt hvað er mikið af afmælum allt í kringum mann í apríl, hvað er fólk upp til hópa að gera svona skemmtilegt 9 mán fyrir apríl............ aha - sumarfrí BINGÓ !!!!
Þeir sem eiga afmæli í kringum mig í apríl - já þetta er allstór hópur - ætla svo sem ekki að telja alla upp - ef ég skyldi gleyma einhverjum.......
Síðustu helgi komu Gústi, Júlía, Katrín og Valentína í heimsókn, og léku Erla og Katrín heilmikið saman, ætlum við að leyfa þeim að hittast oftar. Afar gaman að fá þau í heimsókn.
Síðan fórum við í afmæliskaffi til Möggu - en hún varð held ég 29 ára - eitthvað solleiðis
Gaman að sjá fólk kvitta í gestabókina. Takk fyrir síðast - Adda, Emil og Stefanía, og já Dagný það hefði verið mjög gaman ef þið hefðuð komist, við verðum bara að skella okkur í sveitina til ykkar í sumar - enda er alltaf gaman að kíkja vestur
Athugasemdir
Jamm hún er 5 árum yngri en ég, er 29 ára þessi elska
Kristberg Snjólfsson, 9.4.2008 kl. 07:47
Hæ hæ
Takk fyrir skemmtilega stund í veislunni hennar Tönju. Gott að heyra að hún var að njóta sín. Ég hlakka til að sjá ykkur þegar snjóa leysir.
linda (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 00:16
Takk Linda, það var yndislegt að sjá ykkur mæðgur.
Jú, er ekki sumarið alveg að smella á okkur, ætli ég fari ekki á stjá með familíuna einhverja helgina og kíki á ykkur - kominn tími á það - ekki satt??
Lauja, 14.4.2008 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.