2 dagar til jóla.......
22.12.2009 | 10:31
........og ég hlakka svo til....... er eins og börnin, verður yndislegt að eyða tímanum saman.... spila - lesa - fá heimsóknir - fara í heimsóknir...... yndislegt !
Tók jólatréð inn í gær, og verður það skreytt í kvöld. Ásamt smá bæjarstússi okkar hjóna. Reyndar er yndislegt að stinga af út - bara 2 ein....... maður á að gera meira af því.
Spenningur í loftinu - erfitt að bíða - hjá blessuðum börnunum...... tilhlökkun - en samt eru þau svo góð. Ég útbjó lista fyrir þau í gær - tiltektarlista - og þegar ég kom heim úr vinnunni - voru þau næstum búin með allt sem var á listanum - jólatónlist í botni og kökuilmur frammi á gangi....... jólin eru að koma !
Ég ætla að vera í fríi á morgun og verð í fríi á aðfangadagsmorgun, enda er meira að gera hjá mér milli jóla og nýárs. Jólastússast á morgun með börnunum - útbý eftirrétti - fer í skötu til tengdó - og ef veður leyfir - verður smá bæjarrölt.
Set inn yndislegt lag fyrir daginn í dag - frábær söngkona.... vona að þið njótið þessa. Setti inn útgáfu með texta... þannig að þið getið sungið með
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.