Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Dó hann bara allsber.....
29.10.2007 | 14:45
.... já, Erla sat hjá okkur í gærkvöldi í sófanum, að horfa á sjónvarpið. Horfði á mann fara í líkhús til að bera kennsl á lík - sem var ekki í neinum fötum - og þá sagði hún alveg grafalvarlega við okkur "Dó hann bara allsber?" - Þetta var svo yndislega fyndið og sætt hjá henni - hann hlaut að hafa dáið allsber fyrst hann var ekki í neinum fötum....... segir það sig ekki sjálft???????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Yndislegi - stóri strákurinn minn.....
23.10.2007 | 08:59
..... hann Andri á afmæli í dag...... skrítið hvað tíminn líður fljótt - en hann er orðinn 15 ára
Til hamingju með daginn elsku Andri minn !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1 stk. lag.....
22.10.2007 | 09:23
Tónlist | Breytt 6.9.2008 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjölskyldan hlær að mér.....
21.10.2007 | 23:19
....jamm - ég fór á Læknavaktina áðan - þegar ég kom heim og sagði liðinu hvað væri að mér - horfðu þau á mig og skelltu síðan upp úr - svo segjast þau elska mig
Jæja - ok ég skil þau alveg - en það er frekar fáránlegt að vera með frunsu í auganu!!!!!! réttara sagt augnlokinu..... og jú - það er nú frekar fyndið - en ekki mjög þægilegt.
Ég er frekar pirruð með þetta - fékk þó krem til að setja í augun og einhverjar töflur sem eiga að drepa þetta niður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ótrúlega skemmtileg mynd....
20.10.2007 | 10:12
.... í gærkvöldi lá ég í algjörri leti og horfði á DVD mynd - myndin heitir "Hot Fuzz" - er frá leikstjóra og handritshöfundum myndarinnar "Shaun of the Dead".
Þessi mynd er alveg ótrúlega skemmtileg - enda er myndinni lýst sem "kolsvartri hasargamanmynd - uppfullri af klassískum breskum húmor" - þessi mynd er eiginlega algjört must að sjá - þ.e.a.s. ef þið eruð með góðan húmor...
Þeir sem ætla að leigja mynd í kvöld - ættu ekki að láta þessa fram hjá sér fara, - hún er reyndar bönnuð innan 16 - þannig að þetta er ekki ljúf og sæt fjölskyldumynd.....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lög..... fyrir svefninn....
10.10.2007 | 23:32
Teardrop - Massive attack
http://youtube.com/watch?v=T6iUBd2D38E
The one - Trabant
http://youtube.com/watch?v=0C9aVJYVtSQ
Kiddi rokk kemur aldrei til með að tala illa um Trabant bifreiðar - eftir að hafa flutt allt plötusafnið sitt í þeirri "ofurbifreið" á sínum tíma
You and me - Alice Cooper
http://youtube.com/watch?v=LCpj4WLesVA&mode=related&search=
Bloggar | Breytt 17.10.2007 kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ljósmyndanámskeið...
10.10.2007 | 23:10
Fór á ljósmyndanámskeið í kvöld - en það var haldið niðri í vinnu. Við vorum milli 20 og 30 - en við vorum tilraunadýr - það á að fara að halda námskeið fyrir þá sem kaupa myndavélar - þannig að þetta var hálfgerð "general-prufa"...
Þetta var fínt - allavega lærði ég eitthvað um stillingar á vélinni - farið var á hálfgerðum handahlaupum í gegnum þetta - en þá er bara að fara að æfa sig og prófa sig áfram.... ýmislegt sem er hægt að gera með vélinni - ýmsir möguleikar og hugmyndir..... þannig að málið er að vera dugleg að æfa sig og hugmyndarík......
Þegar ég kom heim með Erlu eftir vinnu - til að skilja hana eftir hjá eldri börnunum - þar sem námskeiðið byrjaði kl. 17:30 - var fullt hús af börnum - í eldhúsinu voru 7 stykki börn að baka skúffuköku - og virtist vera mjöööög gaman hjá þeim - þetta var Tanja og bekkjarfélagar hennar - 3 strákar og 4 stelpur - Sindri og Robbi voru að sjálfsögðu saman - en voru að fara út í fótbolta þegar ég kom heim - Margeir var ekki með í þetta skipti - þar sem hann fótbrotnaði í skólanum í dag - steig á bolta - og - já það þurfti ekki meir........ stórhættuleg íþrótt !!!!! - en Andri var að klára að læra.....
Jæja - ég ætla að láta þetta duga í þetta skipti - góða nótt allir saman.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég kíkti áðan til mömmu....
4.10.2007 | 22:19
... sem er svo sem ekkert fréttnæmt - en hún sagði mér áhugaverða hluti.
Eins og þeir sem þekkja mig vita að mamma er listmálari - en í raun ósköp óþekkt nafn hér á landi - en er frábær listakona - en hefur ekki kunnað að markaðssetja sig.
Í dag hringdi í hana kona - sem var nýbúin að kaupa litla olíumynd eftir hana (fuglamynd) af eldri manni - borgaði 200 þús. fyrir myndina, og var hún forvitin að vita hvort listamaðurinn væri á lífi. Þær spjölluðu heillengi saman - báðar nýbúnar að missa mennina sína - og náðu bara vel saman. Hún vildi endilega fá að koma í heimsókn til mömmu - en mamma var nú ekki alveg til í það .
Síðan fór mamma að segja mér af vinafólki þeirra pabba, en þau keyptu mynd af mömmu fyrir mörgum árum. Þau ráku gistihús hér í Reykjavík og fyrir 2 árum komu Ítalir til þeirra - sem heilluðust svo af þessari mynd - að þau buðu í hana. (Veit þó ekki á hvað myndin fór).
Þessir Ítalir reka víst gistihús á Ítalíu - þannig að núna er mynd eftir mömmu á gistihúsi á Ítalíu. Mamma mundi þó ekki hvar á Ítalíu þetta gistihús var. Ég þarf að hringja í fólkið og forvitnast - hvar á Ítalíu myndin er staðsett - og er síðan ekki bara málið að skella sér þangað.....
Maður fær kannski góðan "díl" á gistingu þegar fólkið veit hverra manna maður er.... (gista frítt í mánuð - hahaha...... - við 4 systur með familíurnar okkar...)
Annars eru myndir eftir mömmu á hinum ýmsu stöðum, Danmörku, Svíþjóð, Ítalíu, Bretland, Bandaríkjunum og fyrir mörgum árum hurfu nokkrar myndir sem mamma hafði sent á sýningu til Frakklands.
Annars þá hefur mamma fengið gull-, silfur- og bronsverðlaun fyrir myndirnar sínar í Frakklandi, Belgíu og Mexíco - en hér á landi er hún ekki mjög þekkt nafn!
Í gær kom frænka okkar í heimsókn til mömmu - þær spjölluðu saman í eldhúsinu - þegar frænkan rak augun í litla mynd sem stóð á borðstofugólfinu - hún dró andann djúpt og spurði síðan "eftir hvaða listamann er þessi mynd" - er þetta eftir einhvern af gömlu "impressjonistunum"???? Er þetta mynd eftir Monet????? - Mamma starði á hana - áreiðanlega með hökuna niður á bringu - og augun á stærð við undirskálar - segir síðan "ég hef verið að vinna í þessari mynd".
Jamm, mér fannst þetta bara dálítið áhugavert - og langaði að koma þessu frá mér....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)