Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
22 dagar til jóla.....
2.12.2007 | 13:20
...... þar sem prinsessan á heimilinu er ótrúlega mikil jólastelpa - set ég þetta lag inn fyrir hana
http://www.youtube.com/watch?v=GOjPhkFj-28
Við tvær fórum í jólaleiðangur í gær - og var keypt bleikt jólakraut - sem hún ætlar að fá upp til sín. Fórum í Blómaval - þar var hurðaskellir að syngja - og tók undir undir í jólalögunum hans. Þegar við voruma ð fara út hittum við Guðbjörgu og Ingó - sem voru að fara inn með barnahópinn - og hittum sömuleiðis Hildi og Betu.
Erla er þvílík jólastelpa - hvaðan skyldi hún hafa þennan áhuga??? Hún var búin að finna nokkur millistykki og setja jólaseríur í samband út um allt - slökkti síðan önnur ljós til að hafa "kósí". Hún er búin að raða alls konar jóladóti í stofugluggann - og í gærkvöldi fór hún í jólaleik..... síðan gekk hún aftur frá öllu eftir sig - þetta er svo spennandi tími.
Annars þá eru börnin byrjuð í jólaprófum - þannig að þau þurfa smá aðhald og yfirferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23 dagar til jóla....... (eða á ég að hafa þetta 23 lög til jóla...)
1.12.2007 | 09:34
...... þá er þessi niðurtalning hafin á baksíðu Moggans - man hvað maður fylgdist með þessu sem krakki - ok - geri það enn... - annars þá fór ég á fætur kl. 6:00 til að hjálpa börnunum að bera út Moggann - frekar kalt en hressandi - þau sofnuðu aftur en ég fékk mér kaffi og fletti blöðunum.
Í gær fórum við að tína niður jólaskraut - Erla var svo spennt - kom niður með lítið jólatré - og þegar því var stungið í samband klappaði hún saman lófunum og hoppaði í gleði...... þetta er allt svo spennandi. Hins vega varð hún alveg miður sín þegar hún komst að því að "græni" SYNGJANDI JÓLAKARLINN VAR BILAÐUR!!! - hann hefur svo sannarlega glatt mörg börn (kannski ekki foreldra) - enda frekar þreytandi til lengdar.
Í dag ætlum við að skreyta meira - enda er Erla að deyja úr spenningi yfir þessu, baka smákökur og dusta ryk af jóladiskum.
Annars þá ætla ég að láta fljóta eitt jólalag (kannski að ég setji inn 1 á dag...).
Mér finnst þetta lag afskaplega skemmtileg - kannski ekki það jólalegasta eða hátíðlegasta - en mér finnst það FRÁBÆRT...
http://youtube.com/watch?v=05Hk7zc4oGs
Söngvarinn í Pouges syngur þetta ásamt söngkonu sem heitir Kirsty MacColl. Hún lést árið 2000 þegar hún var í fríi í Mexókó. Hún var að kafa með syni sínum, hraðbátur sigldi á hana og lést hún samstundis - en hún náði að bjarga syninum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)