Færsluflokkur: Bloggar

Yndislegi - stóri strákurinn minn.....

..... hann Andri á afmæli í dag...... skrítið hvað tíminn líður fljótt - en hann er orðinn 15 ára Smile

 Til hamingju með daginn elsku Andri minn !!! Kissing


Fjölskyldan hlær að mér.....

....jamm - ég fór á Læknavaktina áðan - þegar ég kom heim og sagði liðinu hvað væri að mér - horfðu þau á mig og skelltu síðan upp úr Frown  -  svo segjast þau elska mig GetLost

Jæja - ok ég skil þau alveg - en það er frekar fáránlegt að vera með frunsu í auganu!!!!!!   réttara sagt augnlokinu..... og jú - það er nú frekar fyndið - en ekki mjög þægilegt.  

Ég er frekar pirruð með þetta - fékk þó krem til að setja í augun og einhverjar töflur sem eiga að drepa þetta niður.

 

 


Ótrúlega skemmtileg mynd....

.... í gærkvöldi lá ég í algjörri leti og horfði á DVD mynd - myndin heitir "Hot Fuzz" - er frá leikstjóra og handritshöfundum myndarinnar "Shaun of the Dead".

Þessi mynd er alveg ótrúlega skemmtileg - enda er myndinni lýst sem "kolsvartri hasargamanmynd - uppfullri af klassískum breskum húmor"  -  þessi mynd er eiginlega algjört must að sjá - þ.e.a.s. ef þið eruð með góðan húmor... Grin

http://youtube.com/watch?v=CyaOHriSv-Q&mode=related&search=Hot%20Fuzz%20shaun%20of%20the%20dead%20Police%20Nick%20frost%20Simon%20Pegg%20Edgar%20Wright

 

Þeir sem ætla að leigja mynd í kvöld - ættu ekki að láta þessa fram hjá sér fara, - hún er reyndar bönnuð innan 16 - þannig að þetta er ekki ljúf og sæt fjölskyldumynd.....

 


Lög..... fyrir svefninn....

Teardrop - Massive attack

http://youtube.com/watch?v=T6iUBd2D38E

 

The one - Trabant

http://youtube.com/watch?v=0C9aVJYVtSQ

 

Kiddi rokk kemur aldrei til með að tala illa um Trabant bifreiðar - eftir að hafa flutt allt plötusafnið sitt í þeirri "ofurbifreið" á sínum tíma   Smile

You and me - Alice Cooper

 http://youtube.com/watch?v=LCpj4WLesVA&mode=related&search=

 

 


Ljósmyndanámskeið...

Fór á ljósmyndanámskeið í kvöld - en það var haldið niðri í vinnu.  Við vorum milli 20 og 30 - en við vorum tilraunadýr - það á að fara að halda námskeið fyrir þá sem kaupa myndavélar - þannig að þetta var hálfgerð "general-prufa"...Wink

Þetta var fínt - allavega lærði ég eitthvað um stillingar á vélinni - farið var á hálfgerðum handahlaupum í gegnum þetta -  en þá er bara að fara að æfa sig og prófa sig áfram.... ýmislegt sem er hægt að gera með vélinni - ýmsir möguleikar og hugmyndir..... þannig að málið er að vera dugleg að æfa sig og hugmyndarík......Smile 

 Þegar ég kom heim með Erlu eftir vinnu - til að skilja hana eftir hjá eldri börnunum - þar sem námskeiðið byrjaði kl. 17:30 - var fullt hús af börnum  - í eldhúsinu voru 7 stykki börn að baka skúffuköku GetLost  - og virtist vera mjöööög gaman hjá þeim - þetta var Tanja og bekkjarfélagar hennar - 3 strákar og 4 stelpur - Sindri og Robbi voru að sjálfsögðu saman - en voru að fara út í fótbolta þegar ég kom heim - Margeir var ekki með í þetta skipti - þar sem hann fótbrotnaði í skólanum í dag - steig á bolta - og - já það þurfti ekki meir........ stórhættuleg íþrótt !!!!! LoL - en  Andri var að klára að læra.....

Jæja - ég ætla að láta þetta duga í þetta skipti   - góða nótt allir saman.....Sleeping

 

 

 


Ég kíkti áðan til mömmu....

... sem er svo sem ekkert fréttnæmt Tounge - en hún sagði mér áhugaverða hluti.

Eins og þeir sem þekkja mig vita að mamma er listmálari - en í raun ósköp óþekkt nafn hér á landi - en er frábær listakona - en hefur ekki kunnað að markaðssetja sig.

Í dag hringdi í hana kona - sem var nýbúin að kaupa litla olíumynd eftir hana (fuglamynd) af eldri manni - borgaði 200 þús. fyrir myndina, og var hún  forvitin að vita hvort listamaðurinn væri á lífi.  Þær spjölluðu heillengi saman - báðar nýbúnar að missa mennina sína - og náðu bara vel saman.  Hún vildi endilega fá að koma í heimsókn til mömmu - en mamma var nú ekki alveg til í það GetLost.

Síðan fór mamma að segja mér af vinafólki þeirra pabba, en þau keyptu mynd af mömmu fyrir mörgum árum.  Þau ráku gistihús hér í Reykjavík og fyrir 2 árum komu Ítalir til þeirra - sem heilluðust svo af þessari mynd - að þau buðu í hana.  (Veit þó ekki á hvað myndin fór).   

Þessir Ítalir reka víst gistihús á Ítalíu - þannig að núna er mynd eftir mömmu á gistihúsi á Ítalíu.  Mamma mundi þó ekki hvar á Ítalíu þetta gistihús var.  Ég þarf að hringja í fólkið og forvitnast - hvar á Ítalíu myndin er staðsett - og er síðan ekki bara málið að skella sér þangað..... Cool 

Maður fær kannski góðan "díl" á gistingu þegar fólkið veit hverra manna maður er.... (gista frítt í mánuð - hahaha...... - við 4 systur með familíurnar okkar...)

Annars eru myndir eftir mömmu á hinum ýmsu stöðum, Danmörku, Svíþjóð, Ítalíu, Bretland, Bandaríkjunum og fyrir mörgum árum hurfu nokkrar myndir sem mamma hafði sent á sýningu til Frakklands. 

Annars þá hefur mamma  fengið gull-, silfur- og bronsverðlaun fyrir myndirnar sínar í Frakklandi, Belgíu og Mexíco - en hér á landi er hún ekki mjög þekkt nafn!

Í gær kom frænka okkar í heimsókn til mömmu - þær spjölluðu saman í eldhúsinu - þegar frænkan rak augun í litla mynd sem stóð á borðstofugólfinu - hún dró andann djúpt og spurði síðan "eftir hvaða listamann er þessi mynd" - er þetta eftir einhvern af gömlu "impressjonistunum"????  Er þetta mynd eftir Monet?????  -  Mamma starði á hana - áreiðanlega með hökuna niður á bringu - og augun á stærð við undirskálar - segir síðan "ég hef verið að vinna í þessari mynd".

Jamm, mér fannst þetta bara dálítið áhugavert - og langaði að koma þessu frá mér....

 


Fyndið....

....já ég eiginlega grenjaði úr hlátri í gær þegar Tanja sagði mér af smá uppákomu á milli vina hennar og nýju stelpunnar í bekknum.

Á fimmtudag (eftir Sindra 80´s ball) var opið hús í skólanum fyrir 8 bekk.  

Ægir vinur Tönju sem fór í Hlíðaskóla í fyrra mætti á þetta opna hús ásamt Tuma vini sínum.  Að sjálfsögðu voru þau 3 að umgangast bekkinn og bara gaman, þegar vinkona Tönju sagði að henni finnist Tumi vera sætur - Tanja glennti upp augun og starði á hana - en fór síðan að hlæja - vinkona hennar skildi ekki upp eða niður í þessu Grin...... þannig að Tanja sagði henni að Tumi væri stelpa og héti Álfhildur....... Tounge

En Tumi er ótrúlega strákaleg, með strákaklippingu, gengur í strákafötum (meira að segja boxer) - og það er ekki skrítið að þeir sem ekki þekki hana haldi að hún sé strákur!!

En í gærkvöldi kom Ægir í heimsókn - og þau Tanja fóru síðan heim til Tuma og gistu þar. 

Ég keyrði þau niður eftir og að hlusta á samræður þeirra og pælingar - er bara yndislega skemmtilegt að hlusta á.

Það væri gaman að vera fluga á vegg og hlusta á það sem fer á milli þeirra þegar þau eru ein Smile

Ægir er einnig mjög sérstök týpa, ef ég breyti einhverju hér heima - raða einhverju öðruvísi - þá er hann fyrsti maður að taka eftir því - "en flott hjá þér" - eða hann segir við mig "vá - flottir skór" - eða hann segir jafnvel "rosalega er flott á þér hárið" - - hann er öðruvísi en aðrir strákavinir barnanna minna - og þau Tanja eru perluvinir.   En það slettist þó stundum upp á vinskapinn - en stuttu seinna eru þau aftur orðin bestu vinir - þau eru stundum eins og systkini - enda búin að vera vinir síðan þau voru 5 áraWink

 

 

 


80´s ball hjá Tönju og Sindra

Tanja er í sjoppusjóðnum og var í skólanum að skreyta - þannig að hún náði ekki að verða eins "skrautleg" og bróðir hennar.

Sindri, Róbert og Margeir mættu hins vegar prúðbúnir á ballið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum....... sem ég setti inn í albúm...

 

 


Eitt stykki lag - fyrir daginn í dag...

.... gæðin eru ekkert sérstök - en ég er virkilega skotin í þessu lagi Happy

 http://youtube.com/watch?v=nfQOUR8GAfE

Við keyptum þessa plötu á síðustu menningarnótt - í Tólf tónum á Skólavörðustíg - og er ég að hlusta mikið á hana þessa dagana...

 


Lyklabörnin mín......

.... sem geta verið afskaplega gleymin.  Sindri er ósköp utanvið sig stundum og gleymir húslyklunum.  Fólkið á móti er með aukalykil en hvað gerist þegar þau eru ekki heima.......  jú þau lenda í veislu hjá Magga og Tótu - en þau búa við hliðina á okkur.

Þegar ég kom heim úr vinnunni í gær, sátu Sindri, Margeir og Róbert heima hjá þeim í góðu yfirlæti - drekkandi Kók light, og að næra sig á Doritos og vatnsmelónu og nammi - en Tóta var að koma heim frá Barcelóna úr vinnuferð. 

Þeir voru alsælir, fengu að tékka efri hæðina hjá þeim - skoða tölvur - skjái o.fl. í þeim dúr.  (Þeir voru strax í gær farnir að plana - ef Sindri myndi gleyma lyklunum atur þá gætu þeir kannski fengið að fara til þeirra - fengið popp - kók og að horfa á einhverja mynd !)  -  Meiri gríslingarnir......

Erla fékk sko líka að vera með í gær - Tóta leiddi hana inn til sín og gaf henni sér snakkskál - og var sú stutta í 7 himni yfir þessari meðferð!!

Maggi og Tóta eru á svipuðum aldri og Ingi - en eru barnlaus - og virðast þau bara vera ánægð að fá smá heimsókn af og til.

Hins vegar þá setti ég Sindra lykla í töskuna hans í morgunn....... hann gaf mér ekki hýrt auga þegar hann sá það..........  en það er gaman að þessu.

Auðvitað finnst þeim ósköp ljúft að einhver taki á móti þeim þegar þau koma úr skólanum - svo maður tali nú ekki um að fá svona meðferð..... hjá nágrönnunum.

Afi Tótu og langafi minn voru bræður - þannig að við erum þokkalega mikið skyldar, hins vegar hafði ég aldrei séð hana fyrr en flytjum við hliðina á þeim.

Mamma hennar er komin á níræðisaldur - afskaplega hress kona og í vor þvældist hún til Rússlands - ég kalla hana góða - það er óskandi að maður verði með hennar heilsu - á hennar aldri. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband