Færsluflokkur: Bloggar
Börnin eru sofnuð óvenju snemma......
19.8.2008 | 22:12




Bloggar | Breytt 20.8.2008 kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Æ... krúttið mitt - ertu að þrífa.......
19.8.2008 | 21:24
..... sagði Erla við mig áðan þegar ég var að þrífa baðherbergið...... hún er svo fyndin þessi elska......
Annars þá var hún að fá sent í pósti nestibox frá Osta og Smjörsölunni, ásamt húfu og strokleðri - og er hún alsæl með þessa sendingu "en hvað á ég að gera með 2 nestibox" spurði hún síðan pabba sinn...... nú til að hafa til skiptanna..... jaaaá..... sniðugt
Við fórum í Smáralindina á laugardag með börnin, Erla náði að draga pabba sinn inn í fatabúð að skoða og máta föt (á meðan var ég með Tönju að kaupa bleikt skol til að setja í hárið hennar) - Erla var búin að draga pabba sinn inn í mátunarklefa að máta bol og eitthvað fleira - þegar pabbi hennar sagði "eigum við ekki að biðja mömmu og Tönju að koma og sjá þig?" ......Nei... sagði Erla - mamma segi alltaf nei við mig....... ....hún ætlaði sér sko aldeilis að dobbla pabba sinn meðan mamma hennar væri ekki með - enda kom hálfgerður uppgjafarsvipur á hana í mátunarklefanum þegar "mamma gribba" mætti á staðinn....... tíhíhí........ ...annars þá fann ég voða sætan silfurlitaðan bol fyrir hana..... þannig að hún fyrirgaf pabba sínum að hafa hleypt mér nærri !
Andri mætir í skólann á morgunn - fær stundatöflu og byrjar af fullri alvöru á föstudag, restin af börnunum mæta í skólann á föstudag, og byrja síðan á mánudag - eins og sennilega flest öll önnur börn í Reykjavík.
Ætli ég hiti ekki smá kaffi fyrir okkur hjónakornin, enda er "sakamálaþáttur í "TV-inu" á eftir sem við ætlum að horfa á. Sendum börnin á fyrra fallinu í rúmið - þar sem blaðaútburður er í fyrramálið - og eins gott að fara að komu öllu heimilislífi í réttar skorður á ný eftir sumarfrí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skemmtileg síða
15.8.2008 | 13:47
... þurfum við ekki stundum að segja eitthvað agalega gáfulegt - en ekkert kemur upp í kollinn á okkur....... hér er skemmtileg síða sem er með ýmsar tilvitnanir, spakmæli, orðtök eða málshætti.... þá kennir ýmissa grasa hér....
Góða skemmtun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það sem Erlu dettur í hug að segja.......
15.8.2008 | 10:03
Hún er stundum svo fyndin þessi elska.......
Tanja fór með hana út á leikvöll í fyrrakvöld. Þar er tæki sem krakkar setjast í - stýri í miðjunni - þannig að þau geta farið hring eftir hring á ógnarhraða. Tanja setti hana upp á þetta - og sneri henni (hún er sko spennufíkill - þá er ég að tala um leiktæki)....... Tanja hætti síðan að snúa - og á endanum valt hún útúr ringluð af tækinu - augun í henni hringsnérust - og hún sagði við systur sína:
"Hvað gerðir þú eiginlega við mig.... hentir þú mér í plastpoka út í geim??" ...Tanja grenjaði úr hlátri meðan hún sagði þetta - með augun ranghvolfandi í höfðinu......
Annars þá gengur lífið sitt vanagang - er að koma helgi.... íha eitthvað skemmtilegt verður á döfinni...... og ætla ég að elda einhverja tilraun oní liðið á morgun....... ekki búin að ákveða hvað það verður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mismunandi hlutir æsa fólk upp.......
14.8.2008 | 14:52
Ímyndið ykkur svipinn á lögreglumönnunum sem komu honum til aðstoðar....... ......ætli þeir hafi sýnt honum mikinn skilning og stutt við bakið á honum - eða þurft að snúa sér undan smástund til að líta á fuglinn í trénu bak við bekkinn.......
Sá hefur verið orðinn þurfi - fyrst æfingabekkur hafði þessi áhrif á hann......
En að sjálfsögðu er þetta sorglega fyndin frétt. Aumingjans maðurinn að vera þetta þurfi - og ráðast á bekk í almenningsgarði - til að fullnægja þörfum sínum
![]() |
Ýmislegt reynt til þess að fá fullnægingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.8.2008 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar ég var ólétt af mínu 4 barni......
5.8.2008 | 14:18
...... var það akkúrat þetta.... sem börnin mín höfðu áhyggjur af
Ekki það að ég væri mjög gleymin - eða of kærulaus - (eða kynni ekki að telja...) heldur að ég væri ekki vön að þvælast um allt með 4 börn! En þau hættu nú að hafa áhyggjur af þessu fljótlega...
![]() |
Gleymdu barninu í fríhöfninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verslunarmannahelgin.......
1.8.2008 | 13:02
..... verður eytt í rólegheitum í bænum að þessu sinni.
Finnst oft ágætt að vera í bænum þessa helgi. Enda er Ingi að ná sér eftir lungnabólgu sem hann fékk í sumarfríinu, þannig að ekki er vit í því að vera á miklum þvælingi. Ingi var þó alveg að verða vitlaus að hanga heima - þannig að hann dreif sig í vinnuna í dag. Hann er nú svo mikill hrakfallabálkur stundum þessi elska - og í fyrradag rak hann fótinn svo illilega í sófan - þannig að hann er með eina tá bláa og bólgna - og nöglin hálf laus á honum...... þetta gerist víst ! Erlu finnst táin á pabba sínum all-ógeðsleg - og vildi helst ekki horfa á hana.
Hver veit nema ég kíki eitthvað út úr bænum með börnin í fjöru eða eitthvað annað - fer eftir veðrinu. Við vorum jafnvel búin að spá í að kíkja vestur í heimsókn til hálfsystra minna - en það verður ekkert af því þessa helgina.
Er hálf andlaus - og blogga ekki meir í þetta skiptið
Farið varlega um helgina - ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Flott kona
30.7.2008 | 14:15
Hún er einstaklega sjarmerandi eins og hún er - ég dáist að hennar viðhorfi
Það mættu fleiri hafa hennar hugarfar.
![]() |
Neitaði að láta stækka brjóstin á myndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndir - myndir - myndir
29.7.2008 | 22:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fólk velur og hafnar....
29.7.2008 | 21:03
.... hins vegar þá myndi ég ekki vilja eiga fleiri börn en mín 4 - finnst það meira að segja stundum hálf yfirþyrmandi - sérstaklega þegar þau rífast - þá er eins og ég sé stödd í miðju fuglabjargi - get þá ekki ímyndað mér hvernig það væri með allan þennan hóp !
Ímyndið ykkur að elda jafnvel 3 máltíðir á dag fyrir þennan fjölda - þvo þvott - og allt það umstang sem fylgir hverri fjölskyldu........
Til allrar hamingju - eru til getnaðarvarnir (allavega er það mín skoðun) ...... annars þá átti amma mín 9 börn á 6 árum - mér finnst það nú vel af sér vikið hjá henni !
![]() |
Frjósamasta kona jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)