20 dagar til jóla....

.... smelli inn einu lagi í tilefni þess...... reyndar fann ég það ekki á Youtube - þannig að þið verðið eingöngu að njóta þess að hlusta á það.  Andri spurði mig hvaða lag ég myndi setja inn fyrir daginn í dag - ég var ekki búin að ákveða.  Þá spurði hann hvers vegna ég setti ekki þetta - og já hvers vegna ekki - var reyndar búin að gleyma því - en mér finnst þetta gott lag.  Hlustaði talsvert á Weezer á tímabili - þarf að dusta rykið af þeim diski - fínt lag.

http://radioblogclub.com/open/69459/weezer/Weezer%20-%20The%20Christmas%20Song

 Svo ég tali nú um allt annað - þá er afmælishrina í vinnunni þessa dagana - sitjum við endalaust í leðurhorninu okkar í vinnunni - og úðum í okkur einhverjum heimatilbúnum veitingum.  Brynja var í síðustu viku - þann 28 (góður dagur), Eydís á afmæli 1. des - en kom með veitingar í gær, Björgvin er þann 6, síðan er Bragi þann 9 - og rek ég lestina þann 11 - ég á sem sagt að toppa þetta - hmmm - kannski ég baki súkkulaðihassköku -  múhaaaaaaa - nei - yrði sjálfsagt rekin fyrir það uppátæki  - eða gerð að bökunarmeistara hússins.....  LoL


21 dagur til jóla......

....... og í tilefni af því ætla ég að setja inn jólalag - sem er mjög flott...

http://www.youtube.com/watch?v=THcbQyFtCqg

 


22 dagar til jóla.....

...... þar sem prinsessan á heimilinu er ótrúlega mikil jólastelpa - set ég þetta lag inn fyrir hana Smile

http://www.youtube.com/watch?v=GOjPhkFj-28 

Við tvær fórum í jólaleiðangur í gær - og var keypt bleikt jólakraut - sem hún ætlar að fá upp til sín.   Fórum í Blómaval - þar var hurðaskellir að syngja - og tók undir undir í jólalögunum hans.  Þegar við voruma ð fara út hittum við Guðbjörgu og Ingó - sem voru að fara inn með barnahópinn - og hittum sömuleiðis Hildi og Betu.

Erla er þvílík jólastelpa - hvaðan skyldi hún hafa þennan áhuga???  Hún var búin að finna nokkur millistykki og setja jólaseríur í samband út um allt - slökkti síðan önnur ljós til að hafa "kósí".  Hún er búin að raða alls konar jóladóti í stofugluggann - og í gærkvöldi fór hún í jólaleik..... síðan gekk hún aftur frá öllu eftir sig - þetta er svo spennandi tími.

Annars þá eru börnin byrjuð í jólaprófum - þannig að þau þurfa smá aðhald og yfirferð.

 


23 dagar til jóla....... (eða á ég að hafa þetta 23 lög til jóla...)

...... þá er þessi niðurtalning hafin á baksíðu Moggans - man hvað maður fylgdist með þessu sem krakki - ok - geri það enn... Smile  -  annars þá fór ég á fætur kl. 6:00 til að hjálpa börnunum að bera út Moggann - frekar kalt en hressandi - þau sofnuðu aftur en ég fékk mér kaffi og fletti blöðunum.

Í gær fórum við að tína niður jólaskraut - Erla var svo spennt - kom niður með lítið jólatré - og þegar því var stungið í samband klappaði hún saman lófunum og hoppaði í gleði...... þetta er allt svo spennandi.  Hins vega varð hún alveg miður sín þegar hún komst að því að "græni" SYNGJANDI JÓLAKARLINN VAR BILAÐUR!!!  -  hann hefur svo sannarlega glatt mörg börn (kannski ekki foreldra) - enda frekar þreytandi til lengdar.

Í dag ætlum við að skreyta meira - enda er Erla að deyja úr spenningi yfir þessu, baka smákökur og dusta ryk af jóladiskum.

Annars þá ætla ég að láta fljóta eitt jólalag (kannski að ég setji inn 1 á dag...).

Mér finnst þetta lag afskaplega skemmtileg - kannski ekki það jólalegasta eða hátíðlegasta - en mér finnst það FRÁBÆRT...

http://youtube.com/watch?v=05Hk7zc4oGs

 Söngvarinn í Pouges syngur þetta ásamt söngkonu sem heitir Kirsty MacColl.  Hún lést árið 2000 þegar hún var í fríi í Mexókó.  Hún var að kafa með syni sínum, hraðbátur sigldi á hana og lést hún samstundis - en hún náði að bjarga syninum. 


Afmælisbörn dagsins....

......Erla og Ingi eiga afmæli í dag - þessar elskur...... það var góð afmælisgjöf sem Ingi fékk fyrir 5 árum - hef ekki náð að toppa hana ennþá Smile

París 4.6.2007 033Annars þá átti Erla að koma í heiminn 27. nóv - en hún ætlaði ekki að koma út - nema á réttum degi!!   Ólíkt systkinum sínum - sem létu mig ekki vera að bíða eftir sér.

 En skvísan tók snakk og ís í leikskólann í dag - fékk kórónu - jólalitabók - var alsæl með daginn. 

En var orðin frekar þreytt eftir daginn - og sofnaði í sófanum yfir barnaefninu.  Þegar Anna frænka og amma hennar hringdu til að óska henni til hamingju með daginn - var hún ekki glöð þegar Tanja vakti hana í símann - og öskraði eins og ljón á Önnu og ömmu....... alveg eins í skapinu og pabbi sinn ..... Joyful

Að sjálfsögðu var "stórsteik" sem beið Inga þegar hann kom heim úr vinnunni - og var hann mjög sáttur með það.

Til hamingju með daginn elskurnar mínar  Heart


Helgin...... grímuball og sörubakstur....

Halló allir.......

Helgin var fín, í dag fór ég yfir til tengdó að baka "sörur" Anna, Guðbjörg og Gumma (frænka þeirra)  voru með - þannig að þetta gekk vel, reyndar var ég búin að forvinna þetta í gær - útbúa kremið og mala möndlurnar - þannig að við vorum ekki alveg eins lengi fyrir vikið.

Ég keyrði líka Erlu mína,  en hún fór í heimsókn til Þórdísar og var mjög gaman hjá þeim, skoða naggrísina og að leika sér í Þórdísar dóti.  Þegar ég sótti hana stoppaði ég smástund í kaffi hjá Möttu, en Eiki fór austur á rjúpnaskytterí - veit þó ekki hvað hann fékk.

Í gær kíkti ég aðeins út á lífið - með vinnufélögum.  Drífa ákvað að halda grímuball heima hjá sér og ég kíkti þangað í smátíma.  Dressaði mig upp og málaði mig - þannig að ég var frekar skuggaleg.  (Setti inn myndir af mér uppádressaðri).

Þegar ég var að fara að heiman - spurði Ingi mig hvort ég nennti að hendast og skila DVD mynd.  Ég sagði bara - nei - ég geri það sko ekki - haha..  Ingi hélt að ég væri að grínast - sem ég var ekki að gera - þegar hann leit á mig - þá skildi hann mig.......    ég ætlaði ekki að fara inn á "leiguna" svona útlítandi - ein að skila mynd.....

Það kenndi ýmissa grasa af fólki í partýinu - Earl (úr My name is Earl), þernan hans, draugur, Mikki mús, Ofurhetjan Rakel, páfagaukur, flugfreyja, smiður, lögga, fangavörður, vampíra, flugmaður, sjóræningjahóra, körfuboltamaður o.fl.  Mjög skrautlegur hópur.  Reyndar voru sumir sem mættu búningalausir - en því var reddað í snatri - og endaði einn mjög sætur með lítil silfruð horn... LoL

Árni Björn á verkstæðinu var "Earl" - ég var búin að horfa heillengi á þennan mann og dáðst að því hversu líkur hann væri "Earl" - þegar hann fór að tala - þá fattaði ég hver þetta var.....

Það var einnig alveg ótrúlega fyndið hvað fólk var lengi að kveikja á mér.  Einn var búinn að sitja heillengi á móti mér - þegar hann allt í einu skellir upp úr - bendir á mig og segir "ert þetta þú"  -  sömuleiðis heilsaði ég Brynju - horfði í augu hennar - en hún bara fattaði ekki hver þetta var...... - ok - ég vanalega ekki svona agalega skuggaleg í vinnunni - en mitt fagra augnaráð á ekki að fara fram hjá neinum......... Whistling

Þetta heppnaðist mjög vel, ég var edrú - og ákvað að yfirgefa partýið á hárréttu augnabliki.

Kosning um besta búninginn fór fram og lenti ég í 2. sæti  verðlaunin voru mjög vegleg.....-  Earl lenti í því fyrsta....... djö.... ég hefði ekki átt að kjósa hann !!!!!!!

 Ég gleymdi að taka myndavél - en börnin náðu mynd af mér áður en ég fór að heiman...... ef ég fæ myndir frá partý-liðinu þá set ég þær inn.

 


Fyrir þau sem ætla að föndra.....

.... þá gætuð þið fundið eitthvað hér inni.  En að sjálfsögðu þarf að hafa við hendina - prentara, góðan pappír, skæri og helling af lími........... og við sumt -  endalausa þolinmæði (hentar kannski ekki alveg fyrir Inga......... hahaha.... fyrirgefðu að ég skuli gera grín að þér Kissing )

http://www.canon-europe.com/paperart/

 


Langaði að setja þetta inn......

......  gott lag - og myndbandið er skemmtilegt  (minnir mig þó ekkert á jólin....Grin )

 http://youtube.com/watch?v=cwF1Hr2iejs

 

Kannski að maður horfi á þessa mynd um helgina.

 


Fyrst ég er byrjuð......

.... á ég þá ekki að smella inn öðrum brandara -  líka gamall - en góður....

 

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inni í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.  "Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?" segir Eddi reiður.  "Þetta er ekki svefnherbergið þitt," segir maðurinn, "þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur.  ""HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja... ég er alltof ungur og á eftir að gera svo margt," segir Eddi. " Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!  ""Það er nú ekki svo einfalt," Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið til baka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.  Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf.  "Ég vil snúa aftur sem hæna..." - samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa!  Þá kemur haninn...."Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það?  "Allt í lagi býst ég við" Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!  "Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður?  Nei hvernig geri ég það?  "Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli"   Svarar haninn. Og Eddi  gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa.  Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu. "Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu.  Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra:  "Vaknaðu Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm!

 


Gamall brandari - en stendur þó fyrir sínu......

Hjálpsemi Íslendinga.......

Íslendingar eru að keyra þegar þeir  sjá  bíl úti í kanti og sjá að þetta eru útlendingar.

Íslendingarnir fara út úr bílnum og segja:  "Do you need help?"

Útlendingarnir svara:  " No,  no it´s ok"

Íslendingarnir gefa sig ekki og segja:  "Yes -  yes we are gonna help you"

Útlendingarnir: "No,  no this is ok"

Íslendingarnir: "Yes we are gonna help you"

(Íslendingarnir fara aftur inn í bíl  og koma út með reipi)

Útlendingarnir: "What are you gonna do?"

Íslendingarnir: "First we´re gonna reip you and then we are gonna ýt you"

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband