Langaði bara til að ........
8.9.2007 | 09:55
.... setja þetta lag inn - við ætluðum að kaupa diskinn með þessum tónlistarmanni um daginn - en hvergi fáanlegur -
Mér finnst þetta lag flott - og fleirum finnst það augljóslega einnig - fyrst diskurinn var upp seldur
http://www.youtube.com/watch?v=21hJ_8-eKFo
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Messa á morgun....
8.9.2007 | 09:40
.... jebb nú ætlar mín í messu á morgun - ekki af því hún sé sérlega kirkjurækin - nei hún Tanja á að fermast næsta vor og á hún að draga um dag fyrir bekkinn í kirkjunni á morgun. Þannig að það er skyldumæting
Annars þá fannst mér ágætt að mæta í kirkju með Andra nokkrum sinnum veturinn sem hann fermdist - og býst við að gera hið sama með Tönju í vetur - þ.e.a.s. ef þær vinkonurnar vilji ekki bara mæta foreldralausar - kemur í ljós - hún er samt ekki orðin það mikil gelgja að vilja ekki fara eitthvað með foreldrunum
Við systur ætlum að kíkja í bæinn á kaffihús núna fyrir hádegi - og í kvöld ætla Alma Glóð og Lilja Björt að gista hjá okkur (dætur Kidda og Möggu) - það verður bara gaman hjá krökkunum. Annars þá voru Tanja og Stefanía að passa í gærkvöldi hjá Hröbbu og Hilmari - og gistu þær - þær koma síðan með okkur systrum á kaffihúsið.
Gaman að sjá þegar fólk skrifar í gestabókina - takk Dagný fyrir innlitið - maður hefði átt að drífa sig í heimsókn vestur til ykkar í sumar - en það bíður betri tíma - þú sparkar í rassinn á mér næst þegar við hittumst .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Yndislegi strákurinn minn......
5.9.2007 | 09:20
... hann Sindri á afmæli í dag - 11 ára - hann býður gestum og gangandi upp á saltstangir í tilefni dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lag dagsins er.....
2.9.2007 | 13:36
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gærkvöldið
1.9.2007 | 19:38
Við vorum nú ekkert mjög mörg sem fórum eitthvað á milli 20 og 25 - en fínn hópur - að sjálfsögðu og skemmtum við okkur mjög vel. Byrjuðum í rútunni á bjór og samlokum og var mikið spjallað.
Byrjuðum á Stokkseyri í nýju Álfa- og tröllasafni, sem var skoðað vel - fordrykkur borinn fram í íshelli - sem var gaman að fara inn í.
Síðan lá leiðin í Þorlákshöfn í Kiwanishús staðarins - þar var grillað, dansað og djammað og drukkið til miðnættis, dönsuðum og var virkilega gaman. Hvítvín, rauðvín og Tópas skot fyrir þá sem vildu. Ég var ósköp pen í þessu en sumir voru orðnir þokkalega drukknir, en allir í mjög góðu skapi og var virkilega gaman.
Farið var af stað í bæinn um miðnætti og lá leiðin beint í Nýherja, ég, Esther, Brynja og Björg fórum þar út - þar sem við nenntum ekki að fara með liðinu í bæinn og djamma meira.
Ég fór inn og nældi mér í kafibolla, fór síðan út að spjalla við stelpurnar þar sem þær stóðu út við Tölvutek - og endum við þar að tala saman til kl. 04:00 - en þá skutlaði Brynja okkur heim.
p.s. Ég setti inn nokkrar myndir frá gærkvöldinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fín lög....
29.8.2007 | 22:54
Þegar ég er óttalega andlaus er þá ekki bara málið að hlusta á tónlist - finna gömul lög sem maður er hrifinn af hér eru nokkur...
Cure - lagið Love Cats - alltaf flott
http://youtube.com/watch?v=-EeZRBStMNQ&mode=related&search=
Diskur með Goldfrapp - lagið heitir Lovely Head
http://youtube.com/watch?v=5qGJN3uM4qE
Hér kemur lag með MUSE af plötu sem heitir Showbiz - lagið heitir unintended
http://youtube.com/watch?v=92wD8dQ_B54
Lou Reed - Perfect Day
http://youtube.com/watch?v=q_WEvqxxQiU
Ég held að þetta sé gott í bili - ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Erlan mín....
28.8.2007 | 21:11
... hún liggur ekki á því sem hún þarf að segja
Hún sat við hliðina á mér - og mataði mig á kvöldmatnum þegar hún segir upp úr þurru; "mamma, þú ert svo mikið krútt - og ég elska þig"
Afhverju var hún að mata mig?
Jú, hana vantaði rauðan dótakassa - sem ég sagðist myndi sækja þegar ég væri búin að borða - henni fannst ég vera helst til lengi að borða - þess vegna tók hún upp á að mata mig - hélt ég yrði fljótari að tyggja matinn ef hún færi að mata mig (henni liggur sem sagt á að fá kassann niður til sín) - í sambandi við krútt-athugasemdina hennar - þá finnast afar vænt um að heyra það frá henni .
Ætli sé ekki best að fara að koma börnunum í rúmið, setjast aðeins og horfa á TV og fá sér einn kaffibolla eða tvo -
Góða nótt allir saman.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það getur tekið á að eiga ungling .....sérstaklega dóttur
28.8.2007 | 10:57
Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið
og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju
rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið
og las skjálfhent bréfið sem í því var.
Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að
þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri
þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að
undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo
yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og
mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber
svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir
mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa
hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af
eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja
mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo
innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana
gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir
okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því
og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að
vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni,
hann á það svo skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín
því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að
auki er Ahmed orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern
daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin
þín.
Þín dóttir Guðrún.
PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig
vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í
efstu skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er
óhætt fyrir mig að koma heim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Orðið UNUN....
27.8.2007 | 21:39
.... hverjum hefði dottið í hug að þetta orð kæmi mér alltaf til að brosa !
Afhverju - jú út af snilldar "Radíusflugu" - um Lödu bifreiðaeiganda - sem hafði "UNUN" af að keyra...
hmmmm - ég ætti kannski að fara að plana "radíusbræðraáhlustunarkvöld" - ég held að það yrði mjöööög skemmtilegt
Hvernig haldið þið að ljóska úti í bæ myndi túlka "radíusbræðrakvöld" og "gaurakvöld" ??? - skemmtilegt að spá í það.... allavega ef hún væri búin að hlusta á Radíusbræður - og tekið eftir hvernig margar "flugur" enda þá dytti henni einhver "hommaskapur" í hug
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3 frábær lög fyrir svefninn.....
26.8.2007 | 22:13
Fann þetta inni á YouTube - minnir mig á - að ég verð að fara að fara að taka þennan disk og dusta af honum rykið og hlusta - yndislegt lag....
http://www.youtube.com/watch?v=jbdPUiih020
Síðan verð ég að setja inn eitt lag með þessari hljómsveit, Matta, Hrabba og Adda - minnir þetta lag ykkur á eitthvað ??
Minnir mig á þegar við bjuggum á Flókagötu - og vorum að bíða eftir pabba og mömmu frá útlöndum - og við spiluðum lög með þessari hljómsveit allan daginn til að stytta biðina..... Matta var nýbúin að kaupa plötu með þeim....
http://youtube.com/watch?v=hskKIsf-PAg
... búningarnir eru líka geeeðveikir - hvernig væri að halda ABBA partý - og allir dressaðir upp í ABBA "outfit" - væri það ekki bara snilld????? - Verðlaun fyrir besta búinginn - hver er til?????
Leyfi þessu að fljóta með - textinn er e.t.v. ekki beint sem maður syngur fyrir börnin sín á kvöldin en ég er hrifin af því
http://www.youtube.com/watch?v=AAPMUSCFVhg
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)